Fótbolti

Tveir sigrar hjá Fylki í Lengjubikarnum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Benedikt Daríus Garðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Fylki gegn ÍBV í dag.
Benedikt Daríus Garðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Fylki gegn ÍBV í dag. Vísir/Diego

Fylkir vann sigra bæði í Lengjubikar karla og kvenna í dag. Þá vann FH sigur á Vestra í slag tveggja Bestu deildar liða í Lengjubikar karla.

Fylkir og Keflavík mættust í Reykjaneshöllinni í riðli 1 í Lengjubikar kvenna. Staðan í hálfleik var markalaus en það breyttist heldur betur eftir hlé. 

Guðrún Karítas Sigurðardóttir kom Fylki í 1-0 á 57. mínútu og hún bætti síðan sínu öðru marki við sjö mínútum fyrir leikslok. Flóðgáttirnar opnuðust á lokamínútunum og Sara Dögg Ásþórsdóttir kom Fylki í 3-0 á 88. mínútu áður en Eva Rut Ásþórsdóttir bætti fjórða markinu við á fyrstu mínútu uppbótartíma. Melanie Rendeiro skoraði sárabótamark fyrir Keflavík í uppbótartíma og lokatölur því 4-1.

Í karlaflokki mættust lið Fylkis og ÍBV á Fylkisvelli. Benedikt Daríus Garðarsson tók með sér skotskóna því hann skoraði þrennu í fyrri hálfleiknum og leiddi Fylkir 3-0 að honum loknum.

Guðmar Gauti Sævarsson bætti fjórða markinu við í síðari hálfleik en hann var þá nýkominn inn sem varamaður. Lokatölur 4-0 og Fylkir þar með búnir að vinna sinn fyrsta sigur í Lengjubikarnum þetta tímabilið en Eyjamenn hafa tapað báðum sínum leikjum.

Sigurmark frá Vuk gegn Vestra

Í Akraneshöllinni mættust lið FH og Vestra í riðli 1 Lengjubikars karla. Bæði lið leika í Bestu deildinni í sumar en það verður fyrsta tímabil Vestra í efstu deild. FH vann góðan sigur í fyrsta leik sínum gegn Breiðabliki á meðan Vestri gerði 2-2 jafntefli við Keflavík.

FH náði forystunni í fyrri hálfleik. Vuk Óskar Dimitrijevic fékk þá boltann utarlega í teignum vinstra megin og skoraði með hægri fæti í fjærhornið.

Staðan í hálfleik 1-0 og leikmenn Vestra gerðu hvað þeir gátu til að jafna í síðari hálfleik. Það tókst hins vegar ekki en bæði lið fengu tækifæri til að bæta við mörkum. Andra Rúnari Bjarnasyni tókst reyndar að koma boltanum í net FH í uppbótartíma en var dæmdur rangstæður við töluverð mótmæli Vestramanna.

Lokatölur 1-0 og FH því með fullt hús stiga í Lengjubikarnum eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×