Skoðun

Sorgar­mið­stöð

Alma D. Möller skrifar

Þakkir til Sorgarmiðstöðvar

Sorgarmiðstöð var opnuð árið 2019. Unnið er markvisst að því að samræma úrræði fyrir syrgjendur, efla samfélagsumræðu um sorg, stuðla að skilvirkari upplýsingagjöf og ráðgjöf ásamt því að almennt gæta hagsmuna þeirra sem syrgja. Frá stofnun hennar hefur verið lögð áhersla á að halda úti öflugu stuðningshópastarfi fyrir syrgjendur. Einnig sinnir miðstöðin fræðslustarfi í skólum, heldur reglulega fræðsluerindi fyrir syrgjendur, sinnir stuðningi og fræðslu á vinnustöðum og býður uppá margvíslega samveru.

Landlæknir fékk þann heiður að vera verndari Sorgarmiðstöðvar og með því er áréttað að stuðningur við syrgjendur falli undir lýðheilsustarf og sé mikilvægur þáttur lýðheilsu. Embætti landlæknis og Sorgarmiðstöð hafa starfað saman frá stofnun Sorgarmiðstöðvar, meðal annars við gerð upplýsingaefnis, að vitundarvakningu og að forvarnarverkefnum í tengslum við sjálfsvíg. Bent er á bæklingana Í kjölfar skyndilegs andláts (í endurskoðun þar sem dánarvottorð eru orðin rafræn) og Í kjölfar sjálfsvígs.

Undirrituð flytur starfsfólki, sjálfboðaliðum og stjórn Sorgarmiðstöðvar hjartans þakkir fyrir óeigingjarnt starf og gott samstarf.

Sorgarviðbrögð og snemmtæk íhlutun

Mikilvægt er að hafa í huga að sorgin er eðlilegt viðbragð með margvíslegri birtingarmynd og stigum tilfinninga, allt frá afneitun, reiði og jafnvel sektarkennd, til úrvinnslu, sáttar og skilnings. Flest ná að aðlagast breyttum veruleika með tímanum, en önnur þurfa að upplifa og takast á við langvinna sorg með tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum. Rannsóknir benda til að þau sem upplifa mikla sorg eru í aukinni áhættu á ýmsum geðröskunum, t.d. þunglyndi, kvíða, sjálfsvígshugsunum og áfallastreituröskun sem og líkamlegum sjúkdómum, einkum hjarta-og æðasjúkdómum. Því þarf að grípa snemma inn þegar syrgjandi hefur alvarleg einkenni og mikilvægt er að viðeigandi úrræði séu fyrir hendi

Sífellt fleiri leita sér stuðnings og ráðgjafar hjá Sorgarmiðstöð enda umræðan um sorg og mikilvægi sorgarúrvinnslu opnari en áður var. Sorgarmiðstöð vinnur náið með fagaðilum á landinu, s.s. heilbrigðisstofnunum, kirkjum, sveitarfélögum, viðbragðsaðilum og skólum, til að hlúa sem best að syrgjendum og tryggja aðgengi að upplýsingum og úrræðum tengdum sorgarúrvinnslu.

Þakkir frá Sorgarmiðstöð

Sorgarmiðstöð fékk á dögunum veglegan styrk í tengslum við samning frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu og félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Sú fjárveiting mun gera Sorgarmiðstöðinni kleift að styrkja þjónustu sína við syrgjendur, bæði börn og fullorðna en sérstök áhersla er á sorg og sorgarviðbrögð barna og stuðning eftir skyndilegan missi. Meðal annars er horft til þess að auka aðgengi að ráðgjafasamtölum, stuðningshópastarfi og jafningjastuðningi Sorgarmiðstöðvarinnar. Þá mun miðstöðin halda áfram að styðja við innleiðingu áfallamiðaðrar nálgunar í skólum og nærsamfélagi barna sem og að efla kennara og umsjónaraðila barna í viðbrögðum við sorg og missi.

Styrktarsamningur ráðuneytanna við Sorgarmiðstöð er liður í stefnu stjórnvalda í geðheilbrigðismálum um fjölbreytt og snemmtæk inngrip og úrræði sem efla geðheilbrigði og draga úr áhrifum áfalla á lífsgæði samhliða því að samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Þetta samstarf þriggja ráðuneyta vitnar um aukinn skilning á áhrifum missis á lýðheilsu og gerir Sorgarmiðstöð kleift að styðja áfram við faglega nálgun í sorgarúrvinnslu einstaklinga. Þetta er jafnframt mikil viðurkenning á starfsemi Sorgarmiðstöðvar.

Fyrir hönd Sorgarmiðstöðvar eru hér færðar hjartans þakkir til ráðherra og starfsfólks mennta- og barnamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis.

Einnig eru þakkir til allra samstarfsaðila og velunnara; þeirra sem stutt hafa Sorgarmiðstöð frá stofnun hennar, einstaklinga, félaga, fyrirtækja og sjóða. Sérstakar þakkir til Hafnarfjarðarbæjar, fyrir velvilja í garð miðstöðvarinnar, en hún hefur aðsetur í Lífsgæðasetri St. Jó.

Höfundur er landlæknir og verndari Sorgarmiðstöðvar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×