Innlent

Funda aftur í há­deginu á morgun

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Vísir/Einar

Fundi breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og Samtaka atvinnulífsins lauk nú um klukkan hálf sex. Boðað hefur verið til annars fundar klukkan tólf á morgun.

Þetta staðfestir Elísabet S. Ólafsdóttir, sáttasemjari hjá embætti Ríkissáttasemjara. Hún vildi að öðru leyti ekki tjá sig um stöðu viðræðnanna. 

Fulltrúar breiðfylkingarinnar og SA hafa verið settir í fjölmiðlabann af Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara, og hafa ekki veitt fjölmiðlum viðtöl vegna þessa. 

Í gær sagði VR sig frá breiðfylkingunni, en í dag sagði formaður Rafiðnaðarsambandsins, eins Fagfélaganna, að ekki væri loku fyrir það skotið að félögin færu í samstarf við VR í mögulegum verkfallsaðgerðum vegna viðræðna sinna við SA. 


Tengdar fréttir

„Við fylgjumst bara með stöðunni í kringum okkur“

Samninganefndir breiðfylkingar og Samtaka atvinnulífsins funda nú hjá Ríkissáttasemjara, en VR sagði sig úr fylkingunni í gær. Á sama tíma undirbúa Fagfélögin verkfallsaðgerðir. Formaðurinn fylgist vel með en gefur ekki upp hvort VR sláist í för með þeim.

Hissa og sorgmædd yfir ákvörðun VR

Framkvæmdastjóri SA segir það miður að VR hafi slitið viðræðum í ljósi þess að félagið var búið að samþykkja launaliðinn og að horft væri til verðbólguviðmiða. Það væri sorglegt að 0,2 prósentustiga munur hafi gert útslagið.

Telur sig geta náð betri samningi utan breiðfylkingarinnar

Formaður VR telur sig geta náð betri samningi við Samtök atvinnulífsins með því að slíta félagið frá samstarfi við breiðfylkingu stéttarfélaga. Það gerði hann í dag vegna ágreinings innan fylkingarinnar um forsenduákvæði sem snýr að verðbólgu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×