Innlent

Ekki skyn­sam­legt að gista í Grinda­vík

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofunni varar fólk við því að dvelja í Grindavík. Lítill sem enginn fyrirvari verði á næsta eldgosi.
Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofunni varar fólk við því að dvelja í Grindavík. Lítill sem enginn fyrirvari verði á næsta eldgosi. Vísir/Einar

Auknar líkur eru taldar á gosi á Reykjanesi og kvikumagnið undir Svarstengi mun líklega á morgun ná neðri mörkum þess sem hefur safnast saman í kvikuhólfinu fyrir síðustu eldgos.

Skjálftavirkni hefur aukist síðustu daga rétt austan við Sílingarfell, þar sem kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi mætir kvikuganginum.

„Þetta er til marks um það að þarna er kvikuþrýstingur að aukast. Við vitum það út frá líkönunum að við erum að færast nær og nær næsta kvikuhlaupi og líklega verður eldgos í kjölfarið eins og við höfum séð í síðustu skipti,“ segir Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands. 

Líklegast sé að upptök eldgoss verði fyrir miðjum kvikuganginum án mikils fyrirvara.

„Á þessu svæði sunnan við Stóra-Skógsfell og að Hagafelli. Við getum auðvitað ekki fullyrt neitt um það, það eru einhverjar endanlegar líkur á því að kvikan hlaupi lengra til suðurs eða norðurs eftir kvikuganginum,“ segir Kristín. 

„Það dregur úr skjálftavirkninni við hvern atburð. Það er hreinlega allt orðið það sprungið þarna. Það þarf ekki það mikla spennu til að koma kvikunni áfram. Við búumst við því að það verði styttri fyrirvarar og ekki jafn mikil, áköf skjálftavirkni í aðdraganda næsta eldgoss.“

Vísindamenn hafa lýst yfir áhyggjum af því að fólk dvelji í Grindavík yfir nótt vegna þess skamma fyrirvara sem talinn verður fyrir næsta eldgos.

„Ég myndi segja að það sé ekki skynsamlegt að gista í Grindavík núna, sérstaklega þegar við færumst nær eldgosi. Við vitum að fyrirvararnir geta verið skammir. Það er ekki skynsamlegt og þarna eru töluverðar hættur á ferð,“ segir Kristín. 

„Ein sviðsmyndin er auðvitað sú að kvika leiti suður fyrir Hagafell og í átt að Grindavík. Ef hún gerir það aukast líkur á að það verði eldgos í eða við Grindavík. Ef við fáum kvikuinnskot svona sunnarlega þá má gera ráð fyrir að það verði gliðnun á þessu svæði og töluverðar sprunguhreyfingar í Grindavík.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×