Innlent

Gekk ber­serks­gang á billjardstofu

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn beitti billjardkjuða þegar hann veittist að manninum.
Maðurinn beitti billjardkjuða þegar hann veittist að manninum. Getty/Ekaterina Podrezove

Karlmaður hefur verið dæmdur til sextíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir tilefnislausa líkamsárás á billjardstofu í júní í fyrra.

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir að hafa með vísvitandi líkamsárás ollið manni líkamstjóni, með því að hafa veist með ofbeldi að honum og slegið hann með billjardkjuða í hægri hendi, með þeim afleiðingum að hann hlaut fingurbrot á löngutöng.

Tilkynnt um mann sem gekk berserksgang

Í dóminum segir að þann 20. júní árið 2023 hafi lögregla verið kölluð að vettvangi vegna manns sem gengi berserksgang. Þegar lögreglumenn komu á staðinn hafi þeir hitt fyrir tvo menn fyrir utan. Annar þeirra hafi gefið sig á tal við lögreglu og ítrekað sagt „He hit me“ [Hann barði mig] og bent á hinn.

Sá hafi reynst vera hinn ákærði og borið þess merki að vera undir töluverðum áhrifum áfengis. Hann hafi verið valtur á fæti, óskýr í tali og baðað út höndum.

Braut billjardkjuðann á hné sér

Maðurinn sem fyrir billjardkjuðanum varð hafi mætt á lögreglustöð í september síðastliðnum og lagt fram kæru vegna árásarinnar.

Hann hafi kvaðst hafa verið með tveimur vinum sínum að spila billjard eftir vinnu. Hann hefði séð manninn brjálaðan og öskrandi brjóta billjardkjuða í tvennt á hné sér. Maðurinn hefði síðan litið til þeirra vinanna og komið til þeirra algjörlega að tilefnislausu og lamið hann í andlitið einu höggi með kjuðanum. 

Af ótta við högg í andlitið hefði hann borið fyrir sig báðar hendur og fengið högg á hægri hönd sína. Hann hefði í fyrstu ekki gert sér grein fyrir því að hann væri slasaður. Eftir höggið hefði hanntekið utan um manninn og lagt hann í jörðina. Frekari högg hefðu ekki átt sér stað. Maðurinn hefði þó reynt að ráðast á fleiri en ekkert alvarlegt hefði komið út úr því.

Spilakassinn hætti að greiða út og restin í móðu

Fyrir dómi hafi maðurinn borið að hann hefði farið á billjardstofuna til þess að spila. Langt væri um liðið frá þessu og hann hefði verið ölvaður og því ætti hann erfitt með að muna eftir smáatriðum. 

Hann myndi þó að hann hefði sest við spilavél og vélin hefði svo hætt að borga út peninga. Hann hefði farið til konu sem vann á staðnum og beðið hana að líta á málið en erfitt hefði verið að eiga samskipti við hana vegna tungumálaörðugleika. Hann myndi ekki nákvæmlega hvað hefði verið sagt en hann myndi ekki eftir ágreiningi. Hann hefði orðið stressaður og myndi ekki hvað hefði gerst í kjölfarið.

Hann teldi þó að brotaþoli hefði ætlað að henda honum út af barnum. Hann myndi næst eftir því að vera fyrir utan staðinn að bíða eftir lögreglunni. Hann væri þó sannfærður um að hann hefði ekki ráðist að neinum þar sem hann væri ekki þannig maður. 

Hann kannaðist ekki við brotaþola og hefði ekki verið að spila billjard. Hann gæti því ekki ímyndað sér hvernig þetta hefði gerst. Hann hefði ekki hugmynd um hvernig brotaþoli hefði getað brotnað á fingri. 

Hann hafi kveðist eiga í vandræðum með áfengisneyslu. Þennan dag hefði hann verið að koma úr boði en hann hefði ekki verið búinn að drekka í langan tíma. Þá hefði hann verið á lyfjum.

Í niðurstöðu dómsins segir að með hliðsjón af trúverðugum og staðföstum framburði brotaþola, sem hafi fengið stuðning í framburði vitna og læknisfræðilegum gögnum, sé komin fram full sönnun þess að maðurinn hafi gerst sekur um það sem honum er gefið að sök í ákæru.

Með hliðsjón af hreinu sakarvottorði mannsins og að teknu tilliti til dráttar við meðferð málsins, afleiðinga árásarinnar og þess að hún hafi verið algjörlega tilefnislaus þyki refsing mannsins hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar frestað og hún falli niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms.

Þá var manninum gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, 870 þúsund krónur, og 44 þúsund krónur í annan sakarkostnað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×