Innlent

Segir verk­falls­að­gerðir ekki við­eig­andi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, segir tímapúnkturinn ekki réttur fyrir verkfallsaðgerðir.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, segir tímapúnkturinn ekki réttur fyrir verkfallsaðgerðir. Vísir/Einar

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist þykja það mjög miður að samninganefnd Eflingar upplifi að trúnaðarbrestur hafi orðið í viðræðunum og skoði verkfallsaðgerðir.

Hún segir að það hafi ekki verið ætlun samninganefnd Samtaka atvinnulífsins að sýna viðsemjendum sínum neina vanvirðingu og að öll samskipti fylkinganna fram að síðustu dögum hafi verið til fyrirmyndar.„Við trúum því að núna sé ekki tímapúnkturinn til að fara í átakafarvegi,“ segir Sigríður í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag.

Verkfallsaðgerðir ekki viðeigandi

Sigríður segir að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins hafi lagt sig fram við að sýna trúnað og vera einlæg en að allir geti gert mistök. Boðleiðir geti verið misskýrar og að það geti allir gert betur í þeim efnum.

„Við þurfum í rauninni bara að tala okkur saman í gegnum þær aðstæður sem upp koma. Og það er það sem við erum að fara að gera á morgun. Við erum að fara að hittast við samningaborðið klukkan níu í fyrramálið til þess að halda áfram með þetta verkefni,“ segir Sigríður.

Fulltrúum Samtaka atvinnulífsins finnist þó ákvörðun Eflingar að efna til atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks á mánudaginn kemur ekki viðeigandi vegna mikillar óvissu bæði hérlendis vegna náttúruhamfara og á alþjóðavettvangi. Þegar aðstæður eru með þeim hætti sé mikilvægt að fækka óvissuatriðum eins og kostur er.

„Við vitum líka að þessi verðbólga sem við búum við er of mikil og vextirnir eru háir og landsmenn eiga skilið að bæði breytist. En forsenda fyrir því er auðvitað friður á vinnumarkaði og að okkur takist að gera þessa langtímakjarasamninga,“ segir Sigríður.

Markmiðið sé tímamótasamningur

Hún segir að mikilvægt sé að höfða til allra sem sitja við samningaborðið að klára verkefnið.

„Ég veit að við getum það. Við höfum sýnt það og munum sýna það. Við höldum áfram þangað til verkefnið er búið en það þarf að klára verkefnið til þess að aðrir átti sig á því að það eru breyttar aðstæður,“ segir Sigríður.

„ Þetta allt tekur tíma. En við erum komin svo langt og við munum svo sannarlega ekki gefast upp. Þetta endar að sjálfsögðu með kjarasamningi en markmiðið er auðvitað að þetta endi með kjarasamningi sem er tímamótasamningur sem getur náð þessum markmiðum,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Ríkur verkfallsvilji hjá ræstingafólki sem greiðir atkvæði á mánudag

Fulltrúar breiðfylkingarinnar svokölluðu og Samtaka atvinnulífsins hafa verið boðuð til fundar í fyrramálið en í gærkvöldi ákvað samninganefnd Eflingar að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall hjá félagsfólki Eflingar sem starfar við ræstingar. Formaður Eflingar telur að ríkur verkfallsvilji sé í þeim hópi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×