Ellefu mörk og tvö rauð í leikjum kvöldsins í Lengjubikarnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. febrúar 2024 22:06 Emil Atlason skoraði eitt af fjórum mörkum Stjörnunnar í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Þrír leikir fóru fram í riðlakeppni A-deildar Lengjubikars karla í knattspyrnu í kvöld þar sem nóg var um að vera. Alls voru skoruð ellefu mörk og tvö rauð spjöld fóru á loft.
Í riðli 3 vann Stjarnan afar öruggan 4-0 sigur gegn HK á Samsungvellinum þar sem Helgi Fróði Ingason og Róbert Frosti Þorkelsson sáu um markaskorun heimamanna í fyrri hálfleik. Róbert Frosti bætti svo öðru marki sínu við snemma í síðari hálfleik áður en Emil Atlason gulltryggði 4-0 sigur Stjörnunnar á 71. mínútu. Þetta var fyrsti sigur Stjörnunnar í Lengjubikarnum á þessu tímabili og liðið er nú með fjögur stig í fjórða sæti riðils 3, þremur stigum meira en HK sem situr á botninum. Í sama riðli mættust svo Njarðvík og Fjölnir í Nettóhöllinni þar sem Kenneth Hogg í liði Njarðvíkur og Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, fengu báðir að líta rautt spjald á 42. mínútu. Fjölnismenn nýttu sér liðsmuninn og mörk frá Mána Austmann Hilmarssyni og Óliver Degi Thorlacius í uppbótartíma fyrri hálfleiks og Kristófer Degi Arnarssyni snemma í síðari hálfleik tryggðu liðinu 0-3 sigur. Að lokum vann Fylkir 3-0 sigur gegn Þrótti í riðli 2 þar sem Ómar Björn Stefánsson skoraði tvö mörk fyrir heimamenn og Guðmundur Tyrfingsson eitt.
Lengjubikar karla Mest lesið Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti „Þetta eru tvö dúndurlið“ Körfubolti „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Körfubolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Sjá meira