Skoðun

Flautað til leiks

Trausti Hjálmarsson skrifar

Í dag var flautað til leiks í formannskjöri Bændasamtaka Íslands. Þess vegna er dagurinn stór – að minnsta kosti í mínum huga. Ég trúi því einlæglega að formannskosningarnar geti skipt bændur á Íslandi – og um leið landbúnað þjóðarinnar – miklu máli. Ekki endilega vegna þess að sofið hafi verið á verðinum hingað til heldur vegna þess að við stöndum á mikilvægum tímamótum og þurfum að nýta fjölmörg sóknarfæri okkar til fulls. Grípa gæsina á meðan hún gefst. Seinna gæti orðið of seint.

Ég átta mig að sjálfsögðu á því að framboð gegn sitjandi formanni er ákveðin yfirlýsing um að hægt sé að gera betur. Gagnrýni mín beinist samt í raun ekki að einstökum ákvörðunum sem teknar hafa verið við stjórnvöl samtakanna heldur menningunni og verklaginu sem þar hefur orðið til. Samtal á milli þeirra sem við stjórnvölinn standa og hinna sem ganga til daglegra starfa sinna úti á akrinum hefur dofnað.

Samtal bændaforystunnar og stjórnvalda hefur að sama skapi steytt á skeri. Það hefur í langan tíma frekar líkst störukeppni en samskiptum; hvað þá samstarfi. Þess vegna hafa mörg mikilvæg mál ekki náð fram að ganga. Í því sambandi má nefna tollverndina og ýmis önnur brýn viðfangsefni sem kippa þarf í liðinn til þess að laga rekstrar- og samkeppnisstöðu íslensks landbúnaðar.

Ég hef auðvitað mínar skoðanir á alls kyns áhersluatriðum sem ég tel að forysta Bændasamtakanna þurfi að einbeita sér að. Mér dettur samt ekki til hugar að það sé mitt hlutverk, hvorki fyrir þessar kosningar né mögulega eftir þær, að hafa vit fyrir heildinni um hvert beri að stefna og hvernig. Það eru búgreinarnar sem velja sér sína forystu til að leiða mikilvæg verkefni grasrótarinnar og það er svo formanns BÍ og stjórnar að vinna eftir stefnu bændanna. Einmitt þess vegna hef ég lagt svo mikla áherslu á þau augljósu framfaraskref í vinnulagi bændaforystunnar að leggja betur við hlustir en gert hefur verið og efla með öllum tiltækum ráðum samtal á milli bænda, samstarf þeirra og samstöðu.

Og þessi einföldu leiðarstef í innra starfi okkar bændanna gilda ekki síður út á við. Samtalið við stjórnvöld í landinu þarf að vera hreinskiptið, heiðarlegt og lausnamiðað. Samstarfið við fyrirtækin sem byggja verðmætasköpun sína á framleiðslu okkar bændanna þarf sömuleiðis að grundvallast á trausti og sameiginlegu markmiði um ásættanlega afkomu beggja. Og samstaða í samfélaginu öllu um vöxt og viðgang landbúnaðarins er svo auðvitað hornsteinn þess að vel takist til.

Formannskosningin stendur yfir í dag og á morgun, 1.-2.mars. Félagsmenn í Bændasamtökunum geta tekið þátt og vonandi er að þeir nýti lýðræðislegan rétt sinn með myndarlegum hætti. Það verða síðan einungis kjörnir fulltrúar á Búnaðarþing 14. – 15. mars sem greiða atkvæði um hverjir aðrir taki sæti í stjórn Bændasamtakanna. Vonandi tekst okkur að manna samhentan flokk við stjórnvölinn sem leitar allra leiða til þess að nýta sóknarfæri okkar til fulls.

Höfundur er frambjóðandi til formanns Bændasamtakanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×