Skoðun

Hvernig keyra á fyrir­tæki í þrot?

Aðalgeir Ásvaldsson skrifar

Ákall til SA, Breiðfylkingarinnar, VR og ríkissáttasemjara

Þær rekstraraðstæður sem þið keppist við að semja um á veitingamarkaði eru ekkert annað en ósjálfbærar fyrir fyrirtækin sem starfa á veitingamarkaði. 

Hver sem er getur séð það neyðarástand sem ríkir í greininni, jafnt gömul sem ný fyrirtæki eru að þrotum komin. Launaliðurinn er því miður löngu kominn að þolmörkum og orðin það fyrirferðarmikill að enginn innistæða er fyrir ferkari hækkunum fyrir greinina. Enda finnast ekki viðlíka álagsgreiðslur og á Íslandi. Hvergi. 

SVEIT hefur ítrekað varað við þeirri þróun sem hefur nú leitt af sér þá stöðu sem við erum komin í en í fyrra fóru fleiri fyrirtæki á hausinn en síðastliðin áratug. Þá búa fyrirtækin við rekstrarumhverfi þar sem:

  • 50% starfsmanna eru með undir 1 árs starfsreynslu. 
  • 80% störf í greininni eru hlutastörf. 
  • 70% launagreiðslna eru greidd með álagi. 
  • Frá 2016 hafa laun hækkað um 63% , mesta allra atvinnugreina 
  • Hagnaðarhlutfall fyrir skatta og gjöld árið 2022 var aðeins 5,4%. 
  • 48% fyrirtækja eru 5 ára eða yngri. 

Slíkt umhverfi kallar á sérsniðna samninga líkt og önnur lönd gera enda engin önnur grein sem lútir sömu lögmálum. Það yrði seint sagt að flugmenn ættu að vera með sömu samninga og verslunarfólk en af einhverjum ástæðum sjá hvorki SA eða verkalýðsfélögin ástæðu til að gera sérsamninga sem taka mið af starfsumhverfinu heldur keyra áfram hækkanir þar sem engin innistæða er fyrir. 

Brotið og ósamkeppnishæft rekstaraumhverfi skapar ósjálfbæra atvinnugrein. Það virðist ekki skipta verkalýðshreyfinguna nokkru einasta máli að kafsigla fyrirtækjunum sem skjólstæðingar þeirra vinna hjá. Ekki virðist vera neinn skilningur á alvarleika málsins. Allt bendir til áframhaldandi launahækkana sem mun einfaldlega skila samdrætti í framboði, enn fleiri gjaldþrotum auk þess að skapa kjör aðstæður fyrir ólöglega atvinnustarfsemi. 

Á veitingamarkaði starfa rúmlega 1000 fyrirtæki, lang flest lítil og meðalstór og hjá þeim starfa rúmlega 10.000 starfsmenn. Þetta er mikilvæg atvinnugrein fyrir fagfólkið okkar sem er í fremsta flokki, sem gerir skólafólki kleift að ná sér í tekjur með námi, heldur uppi mikilvægri menningu til að draga hingað ferðamenn ásamt því að gera okkur Íslendingum kleift að gera okkur glaðan dag.

Undirrituð fyrirtæki skora á samningaðila að horfa raunverulega á þá innistæðu sem greinin á og gera kjarasamninga sem stuðla að því að koma á samkeppnishæfu rekstrarog starfsumhverfi en ekki skapa starfsumhverfi sem keyrir veitingarekstur í þrot.

  • 2Guys
  • American Bar
  • Amma don
  • Apótek
  • Askur
  • Bastard
  • Bautinn
  • Bergnótt
  • BK Kjúklingur
  • Blackbox
  • Bodega Reykjavík
  • Bragðlaukar
  • Brand Vín & Grill
  • Brass Kitchen & Bar
  • Brasserie Kársnes
  • Brewdog Reykjavík
  • Brikk brauð og eldhús
  • Bryggjufélagið
  • Craft Burger Kitchen
  • Danska kráin
  • DB veitingar
  • Deig
  • Dillon
  • Dragon Dim Sum
  • Duck & Rose
  • Einsi Kaldi
  • Eldstó Café & Potters House
  • Enski barinn
  • Finnsson Bistro
  • Fiskfélagið
  • Fiskmarkaðurinn
  • Fjallkonan
  • Fjöruborðið
  • Flatbakan
  • Flatey
  • Fönix
  • Forréttabarinn
  • Frederiksen Ale House
  • Friðriksgáfa
  • Fröken Selfoss
  • Gaming Arena
  • Gamla bíó
  • Gamli Baukur
  • Gamli Gaukurinn
  • GJ Veitingar
  • GOTT restaurant
  • Greifinn
  • Grillmarkaðurinn
  • Groovís
  • Hamborgarabúlla Tómasar
  • Hipstur
  • Hlöllabátar
  • Hús Máls og menningar
  • Húsavík Öl
  • Hygge
  • Icelandic street food
  • Irishman pub
  • Íslenski barinn
  • Kaffi krús
  • Kaffi Laugalækur
  • Kaffibarinn
  • Kaldi bar
  • Kastrup
  • Kex
  • Kiki -queer bar
  • Kol Restaurant
  • Kringlukráin
  • Kröst
  • La Barceloneta
  • Lamb streetfood
  • Langbest
  • Laundromat Café
  • Le KocK
  • Lebowski bar
  • Local
  • Lux veitingar
  • Mandi
  • Matarkjallarinn
  • Matbar
  • Mathús Garðabæjar
  • Matur og drykkur
  • Menam
  • Monkeys
  • Múlaberg bistro & bar
  • Næs
  • Naustið
  • Nauthóll
  • Nings
  • OTO
  • ÓX restaurant
  • Pablo Discobar
  • Petersen svítan
  • Pizza 107
  • Pizzan
  • Plantan Kaffihús
  • Preppbarinn
  • Prikið
  • Public House
  • Punk
  • Ráðagerði
  • Ramen Momo
  • Rauða Ljónið
  • Riverside restaurant
  • ROK
  • Romano Pasta
  • Röstí Burger & Beer
  • Rub 23
  • Sælkerabúðin
  • Sæta Svínið
  • Samúelsson Matbar
  • Serrano
  • Session Craft Bar
  • Sigló Veitingar
  • Sjávargrillið
  • Sjávarpakkhúsið
  • Skál
  • Skúli Craft Bar
  • Slippurinn
  • Sólon
  • Spretturinn
  • Steikhúsið
  • Subway
  • Sumac
  • Sushi Corner
  • Sushi Social
  • Takkó
  • Tapas barinn
  • Tasty
  • The Gastro Truck
  • Tipsý
  • Torgið restaurant
  • Tres locos
  • Tryggvaskáli
  • Valhalla Restaurant
  • Veður
  • Veisluþjónusta Suðurlands
  • Veitingahúsið Suður-Vík
  • Verbúðin 66
  • XO
  • Yuzu

Höfundur er framkvæmdastjóri SVEIT - Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×