Innlent

Baldur kannaði hug Akur­nesinga varðandi for­setann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Baldur ásamt dóttur sinni Álfrúnu Pelu og litlu Sóleyju Lóu auk hjónanna Valgerðar og Jakobs. Akrafjall í bakgrunni.
Baldur ásamt dóttur sinni Álfrúnu Pelu og litlu Sóleyju Lóu auk hjónanna Valgerðar og Jakobs. Akrafjall í bakgrunni. Baldur Þórhallsson

Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði sem íhugar alvarlega framboð til forseta Íslands segist þurfa að taka stóra ákvörðun fljótlega. Hann kannaði hug Akurnesinga til framboðs á Skipaskaga í gærkvöldi.

Baldur, Alma Möller landlæknir, Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur, Salvör Nordal umboðsmaður barna, Jón Gnarr grínisti og Halla Tómasdóttir forstjóri liggja öll undir feld varðandi forsetaframboð. Enginn hefur enn stígið fram.

Alma landlæknir færist samkvæmt heimildum fréttastofu nær framboði. Jón Gnarr sagðist á Facebook um helgina íhuga næstu skref. Þá snerti Halla Tómasdóttir á áhyggjum sínum af eldfimri umræðu á samfélagsmiðlum þessa dagana og sagðist íhuga framboð sitt alvarlega.

Meðal kenninga um ástæður þess að mögulegir frambjóðendur hafa ekki látið vaða er sú að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra íhugi framboð.

„Ég hef ekki leitt hugann að slíku framboði enda eru ærin verkefni í forsætisráðuneytinu,“ sagði Katrín á Alþingi fyrir sléttri viku. Hún var þá beðin um nei eða já svar frá þingmanni Flokks fólksins hvort hún ætlaði að gefa kost á sér til forseta.

Baldur tjáir sig í Facebook-hópnum Baldur og Felix - alla leið sem telur nú tæplega átján þúsund manns. Gunnar Helgason, rithöfundur og vinur þeirra, stofnaði til hópsins fyrir viku að loknum fundi á heimili þeirra í Vesturbænum þar sem mögulegt framboð var til umræðu meðal fólks úr ýmsum áttum. Meðal annars fólki sem er hokið af reynslu í kosningabaráttu.

„Við Felix erum djúpt snortnir yfir hvatningu ykkar og allra þeirra fallegu orða sem þið hafið látið falla um okkur. Þúsund þakkir fyrir öll boðin um aðstoð við hugsanlegt framboð. Mikið eruð þið fallegt og gott fólk,“ segir Baldur sem lét nokkra daga líða áður en hann gekk í hópinn.

„Í kvöld buðu vinir okkar Valgerður og Jakob á Akranesi mér heim til að hitta nokkra sveitunga sína. Ég notaði tækifærið til að hlusta og heyra hvað Akurnesingar vilja helst að forsetinn og maki hans vinni að á komandi kjörtímabili. Þessar góðu umræður sem og ykkar mikilvægu framlög hér á síðunni munu nýtast okkur vel við þessa stóru ákvörðun sem við þurfum að taka. Þúsund þakkir til ykkar allra.“


Tengdar fréttir

Salvör Nordal íhugar forsetaframboð

Salvör Nordal umboðsmaður barna hefur bæst í hóp fólks sem íhugar forsetaframboð. Hún segir embættið mikla skuldbindingu og því ætli hún að hugsa sig mjög vandlega um. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×