Innlent

Fasteignasamningar í upp­námi vegna stíflu í bruna­bóta­mati

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nokkuð frost hefur verið á fasteignamarkaði undanfarna mánuði enda vextir verið háir og erfiðara að fá hagstæð lán.
Nokkuð frost hefur verið á fasteignamarkaði undanfarna mánuði enda vextir verið háir og erfiðara að fá hagstæð lán. Vísir/Vilhelm

Dæmi eru um að fasteignaviðskipti séu í uppnámi vegna mikils fjölda beiðna um brunabótamat hjá Hús- og mannvirkjastofnun. Endurmatsbeiðnir í febrúar voru á pari við fjölda slíkra beiðna yfir átján mánuði.

Alls bárust um eitt þúsund beiðnir um endurmat á brunabótamati til HMS í febrúar og fram í byrjun mars. Þær hafa margfaldast vegna ástandsins í Grindavík. Endurmatsbeiðnirnar í febrúar voru álíka margar og fjöldi beiðna sem gera má ráð fyrir að stofnunninni berist að jafnaði á einu og hálfu ári.

HMS áætlar að afgreiðslutími endurmatsbeiðna, sem tekur að jafnaði innan við viku, gæti nú tekið allt að sex vikur. Þetta kemur fram á heimasíðu HMS.

Vesen í fasteignaviðskiptum

Þessi margfaldi afgreiðslutími kemur ýmsum illa. Þeirra á meðal þeim sem standa í fasteignakaupum. Fréttastofa veit dæmi þess að söluferli á fasteign er í uppnámi vegna þess að kaupandi fasteignar gerði fyrirvara við kaupin að brunabótamat fasteignarinnar yrði endurmetið.

Brunamótamatið var innan við helmingur af söluverði íbúðarinnar. Seljandi taldi ekki mikið mál að óska eftir endurmati og þá væntanlega einhverri hækkun á brunabótamati. Honum brá í brún þegar í ljós kom að sex vikna biðtími væri eftir matinu.

Fasteignaviðskipti húseigenda fela yfirleitt í sér ákveðin dóminóáhrif. Til að geta keypt þarftu að selja. Sex vikna biðtími eftir endurmati á brunabótum fasteignar getur því auðveldlega haft mikil áhrif á fasteignaviðskipti.

Úrvinnsla tekur stundum einn virkan dag en gæti nú tekið þrjátíu

Stór hluti þess mikla fjölda beiðna sem HMS barst í febrúar kemur frá Grindavík en í kjölfar umfjöllunar um mikilvægi brunabótamats síðustu vikna hafa fleiri eigendur húseigna alls staðar af landinu einnig sent inn endurmatsbeiðnir eftir að hafa farið í stærri framkvæmdir á eignum sínum.

Með endurmati geta íbúðaeigendur tryggt að brunabótamatið á eignum sínum sé sem réttast og endurspegli sem best vátryggingarverðmæti þeirra.

Í kjölfar þessa mikla fjölda umsókna sem HMS hefur borist býst stofnunin við að úrvinnsla þeirra, sem tekur að jafnaði 1-5 virka daga, gæti lengst töluvert. Þegar þetta er skrifað er áætlaður afgreiðslutími endurmatsbeiðna kominn í allt að sex vikur.

Gæta sanngirnis

HMS segist gera allt sem í sínu valdi til þess að hraða vinnslu eftir fremsta mætti.

„Beiðnirnar eru unnar í þeirri röð sem þær berast inn og ekki er hægt að óska eftir flýtimeðferð,“ segir á vef stofnunarinnar.

Fólk þar á bæ sé þó meðvitað um að mörgum liggi á að niðurstaða liggi fyrir og því mikilvægt að gæta sanngirnis í vinnsluröð mála.

Um brunamótamat

HMS hefur áður tekið saman helstu upplýsingar um endurmat brunabótamats og framkvæmd þeirra í ljósi atburðanna í Grindavík. Húseigendur hafa ástæðu til að óska eftir endurmati á brunabótamati ef einhverju hefur verið bætt við eignina eða ef farið hefur verið í miklar endurbætur umfram hefðbundið viðhald og heilum byggingarhlutum skipt út.

Brunabótamat byggir á skráningu húseigna, hönnunargögnum og upplýsingum frá eiganda. Mikilvægt er að gögn sem eigendur leggja fram endurspegli núverandi ástand eignarinnar enda á brunabótamat að endurspegla vátryggingarverðmæti eignarinnar á þeim tíma þegar virðing fer fram.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×