Innlent

Á­ætla að hækka þurfi leigu hjá Fé­lags­bú­stöðum um 6,5 prósent

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Stjórn Félagsbústaða lagði til að leiga yrði hækkuð um 1,1 prósent en því var hafnað af velferðarráði borgarinnar.
Stjórn Félagsbústaða lagði til að leiga yrði hækkuð um 1,1 prósent en því var hafnað af velferðarráði borgarinnar. Vísir/Vilhelm

Stjórnarformaður Félagsbústaða Reykjavíkur segir að hækka þurfi húsaleigu um 6,5 prósent til að standa undir aukinni greiðslubyrði lána sem tekin voru til að fjármagna endurbætur og viðhald á húsnæði í eigu félagsins.

Frá þessu greinir RÚV.

Vitnað er í ársskýrslu Félagsbústaða þar sem segir í skýrslu stjórnar að tæpar 400 milljónir króna hafi vantað upp á í árslok 2023 til að veltufé frá rekstri nægði fyrir afborgunum langtímalána.

Félagsbústaðir hf. eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, sem sér um að „tryggja framboð og uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis í borginni, kaupa, byggja og selja húsnæði, annast útleigu íbúða, veita leigjendum viðeigandi þjónustu, annast viðhald og almennan rekstur félagsins“.

Félagið leigir nú út um 3.100 íbúðir en í árslok 2023 töldust 71 prósent íbúða til almenns félagslegs leiguhúsnæðis, 15 prósent til íbúða fyrir fatlað fólk, 12 prósent til íbúða fyrir aldraða og tæplega 2 prósent íbúða fyrir þá sem skráðir eru heimilislausir.

RÚV hefur eftir Haraldi Flosa Tryggvasyni, fráfarandi stjórnarformanni, að ófyrirséð frávik vegna viðhalds skýrðu þá stöðu sem upp væri komin. Félagið hefði ekki í neinn varasjóð að sækja, enda væri það óhagnaðardrifið.

Hann segir að áætlanir geri ráð fyrir að hækka þurfi leigu um 6,5 prósent til að mæta fjárþörf Félagsbústaða en í ársreikningnum segir að stjórn félagsins hafi lagt það til fyrri hluta árs 2023 að hækka leiguverð um 1,1 prósent en að tillögunni hefði verið hafnað af velferðarráði.

„Stjórn og stjórnendur hafa lýst áhyggjum af stöðunni og brugðist við með ýmsum hagræðingaraðgerðum. Fengnir voru óháðir sérfræðingar til þess að leggja mat á rekstrar- og fjárfestingagetu Félagsbústaða til næstu ára með hliðsjón af núverandi skuldbindingum og viðhalds- og uppbyggingaráætlunum eignasafnsins. Niðurstaðan leiddi í ljós að tekjur þurfi að aukast umtalsvert umfram almennar verðlagshækkanir til að sjálfbærniviðmiðum sé náð,“ segir í skýrslu stjórnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×