Innlent

Seðla­banka­stjóri grípur boltann frá verka­lýðs­hreyfingunni

Heimir Már Pétursson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að nú þegar meginlínur langtíma kjarasamninga liggi fyrir væri boltinn hjá Seðlabankanum.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að nú þegar meginlínur langtíma kjarasamninga liggi fyrir væri boltinn hjá Seðlabankanum. Stöð 2/Arnar

Seðlabankastjóri segir nýgerða kjarasamninga góð tíðindi og hugsunin í samningunum væri góð. Nú væri boltinn hjá Seðlabankanum en hann ákveður meginvexti sína í næstu viku.

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans kynnti skýrslu sína um stöðu efnahagslífsins á fundi í morgun. Þar kom fram að peningastefnan með hækkandi vöxtum hefði náð að hægja mikið á hagkerfinu og hagvexti. 

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segist vona að nýgerðir kjarasamningar og sú stefna sem þeir mörkuðu með hófsömum launahækkunum á næstu fjórum árum, verði innleg til minni verðbólgu og lækkunar vaxta.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nýundirritaða kjarasamninga góð tíðindi í baráttunni við verðbólguna.Stöð 2/Arnar

„Þetta eru góð tíðindi. Þetta eru samningar til lengri tíma. Mér finnst hugsunin í samningunum líka vera góð. En þeir eru náttúrulega flóknir. Margir þættir inni í þeim eins og tillaga ríkisins. Einnig eru ólíkar stéttir að koma saman. Þannig að við höfum kannski ekki alveg heildaryfirsýn yfir samningana eins og sakir standa,“ segir Ásgeir.

En seðlabankastjóri og félagar hans í peningastefnunefnd hafa viku til að melta samningana þar til sú nefnd tekur ákvörðun um meginvexti bankans, sem greint verður frá eftir viku. Við undirritun samninga breiðfylkingarinnar í síðustu viku sagði Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins að samningarnir væru eftir forskrift Seðlabankans og þess vegna væri boltinn nú kominn þangað.

„Það er alveg rétt. Boltinn er hjá okkur. Að ná niður þessari verðbólgu og ná verðstöðugleika. Það er bara sú ábyrgð sem Seðlabankinn mun axla í þessu,“ segir seðlabankastjóri.

Mjög hratt hefur dregið úr umsvifum í íslensku efnahagslífi undanfarna mánuði og hagvöxtur minnkað mikið. Ásgeir segir hagvöxt hafa samanlagt verið tuttugu prósent á undanförnum þremur árum, þar af níu prósent árið 2022. Nú stefni hans hins vegar í 1,9 prósent á þessu ári.

Í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem seðlabankastjóri flutti í morgun sagði hann fjármálakerfið hins vegar standa á traustum fótum.

„Skuldahlutföll hafa almennt lækkað og eru nú lægri en þau hafa verið um árabil. Eiginfjárstaða heimila hefur batnað samhliða hækkun húsnæðisverðs og lækkun skulda að raunvirði. Á sama tíma hefur greiðslubyrði lánþega þyngst en vanskil eru þó enn lítil,“ sagði Ásgeir Jónsson.


Tengdar fréttir

Ríkis­sátta­semjari reynir til þrautar að miðla málum

Lítið sem ekkert hefur verið um sameiginlega fundi samninganefnda SA og verslunarmanna í dag heldur hefur ríkissáttasemjari gengið á milli deiluaðila og lagt fyrir þá hugmyndir, sem gætu verið til lausnar deilunni. Kynnti hann eina slíka hugmynd fyrir samningsaðilum á áttunda tímanum í kvöld. Eftir það tóku deiluaðilar sér kvöldmatarhlé og ætla að koma aftur saman hjá sáttasemjara síðar í kvöld. 

Háir raun­vextir þrengja að rekstrar­um­hverfi fyrir­tækja næstu misserin

Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka hér á landi er sterk, sem birtist meðal annars í góðu aðgengi þeirra að fjármögnun, en hækkandi raunvextir eru farnir að fara draga úr eftirspurn heimila og fyrirtækja eftir lánsfjármagni, að sögn fjármálastöðugleikanefndar. Hún vekur athygli á því að þyngri greiðslubyrði lána ásamt minnkandi efnahagsumsvifum auki líkur á greiðsluerfiðleikum sem hafi neikvæð áhrif á fjármálastöðugleika.

Stál í stál í Karphúsinu

Aukin harka hljóp í kjaraviðræður verslunarmanna í dag þegar Samtök atvinnulífsins hófu atkvæðagreiðslu um verkbann á þúsundir félagsmanna VR vegna boðunar félagsins á röð verkfalla hjá Icelandair.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×