Innlent

Dýr­tíðin skerði sam­keppnis­hæfni á­fanga­staðarins Ís­lands

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar bendir á að efnahagslegt umhverfi greinarinnar hér á landi skerði samkeppnishæfni. 
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar bendir á að efnahagslegt umhverfi greinarinnar hér á landi skerði samkeppnishæfni.  Vísir/Vilhelm

Stjórnvöld verða að taka alvarlega þær blikur sem á lofti eru í ferðaþjónustu. Þetta segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar sem varar við þeim efnahagslegu afleiðingum sem samdráttur í greininni hefði í för með sér fyrir þjóðarbúið.

Í aðsendri grein í Viðskiptamogganum segir Bjarnheiður að blikur séu á lofti í ferðaþjónustu. Nokkrir samverkandi þættir leiði til þess að líklega verði samdráttur í greininni á þessu ári, til dæmis jarðhræringar á Reykjanesi en fréttaflutningur erlendis virðist hafa haft þau áhrif að fólk telji Ísland síður öruggan áfangastað. 

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.Vísir/Egill

Þá vegur dýrtíðin á Íslandi einnig þungt. Skilaboðin sem Samtök ferðaþjónustunnar fái frá söluaðilum erlendis séu þau að samanburður á ferðum til Íslands og ferða til fjarlægari landa, sem hafi verið kostnaðarsamari, sýni að verðið sé orðið sambærilegt. Því sé nauðsynlegt að bæta efnahagslegt umhverfi hér á landi.

„Það er há verðbólga, háir stýrivextir, hár launakostnaður, háir skattar og svo framvegis sem veldur því að verðlag í greininni er tiltölulega hátt miðað við þær þjóðir sem við berum okkur saman við og þá drögumst við einfaldlega aftur úr í samkeppnishæfni þegar áfangastaðurinn er orðinn of dýr.“

Svokallaðir „fjarmarkaðir“ séu nú að opnast hver af öðrum eftir kórónuveirufaraldur.

„Við högnuðumst á því að sumir þessara markaða voru nánast lokaðir þannig að fólk ferðaðist meira bara innan Evrópu og Bandaríkjamenn til Evrópu og að lokum þá langar mig að nefna það að við stöndum okkar keppinautum langt að baki varðandi neytendamarkaðssetningu á erlendum mörkuðum. Við erum ekki að fjárfesta nægilega mikið til að kynna áfangastaðinn og halda vitund gesta vakandi varðandi staðinn og það er helst það sem við gætum bætt úr á þessum tímapunkti. Við gætum stóraukið markaðsetningu erlendis á áfangastaðnum Íslandi.“

Blikur eru á lofti í ferðaþjónustu.Vísir/VIlhelm

Nokkurra prósenta samdráttur á pari við loðnubrest

Bjarnheiður segir að ekki megi vanmeta efnahagsleg áhrif mögulegs samdráttar fyrir þjóðarbúið. Hún segir að til þess að almenningur og stjórnvöld skilji umfangið þurfi hún að bera saman ferðamennsku og  sjávarútveg.

„Fimm prósent samdráttur í fjölda ferðamanna til Íslands er eins og á við 25 milljarða tekjutap sem er á við eina meðal loðnuvertíð og síðan er hægt að margfalda þetta eftir því sem samdrátturinn verður meiri.“


Tengdar fréttir

Hægði verulega á vexti ferðaþjónustunnar undir lok árs

Töluvert hægði á vexti ferðaþjónustunnar síðustu tvo mánuði ársins 2023. Velta jókst töluvert í flestum atvinnugreinum á árinu samanborið við 2022 þar sem ferðaþjónustan varð um tíma stærsta atvinnugrein landsins og óx um tuttugu prósent ásamt fasteignaviðskiptum og byggingarstarfsemi.

Þróunin í ferða­þjónustu á næstunni er „einn helsti á­hættu­þátturinn“

Vísbendingar eru um að jarðhræringarnar á Reykjanesi séu að hafa talsverð neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna í upphafi ársins og „einn helsti áhættuþátturinn“ er hvernig þróunin verður í framhaldinu í atvinnugreininni, að sögn seðlabankastjóra. Ef hagkerfið fer að kólna hraðar en nú er spáð vegna samdráttar í ferðaþjónustu er „alveg klárt“ að það mun flýta fyrir vaxtalækkunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×