Innlent

Lands­bankanum bar að upp­lýsa Bankasýsluna

Heimir Már Pétursson skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans segir bankann ekki ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag. Þetta segir fjármálaráðherra ekki vera rétt.
Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans segir bankann ekki ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag. Þetta segir fjármálaráðherra ekki vera rétt. Stöð 2/Einar

Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna um fyrirætlanir sínar um kaup á TM tryggingum að mati fjármálaráðherra. Það samræmdist ekki stefnu stjórnvalda að bankinn haslaði sér völl í Tryggingarstarfsemi.

Bankaráð Landsbankans varð í dag við kröfu Bankasýslunnar um að fresta aðalfundi bankans sem halda átti á morgun til 19. apríl. Bankasýslan fer með hlut ríkisins í fjármálastofnunum og þar með 98 prósenta eignarhlut í Landsbankanum.

Samkvæmt bréfasendingum í gær kom Bankasýslan af fjöllum þegar Landsbankinn tilkynnti á sunnudag að hann hefði skrifað undir bindandi kaupsamning við Kviku banka um kaup á tryggingafélaginu TM fyrir 26,8 milljarða króna.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra segir að Landsbankinn hafi átt að greina Bankasýslunni frá því að til stæði að kaupa TM áður en gengið var frá kaupunum.Vísir/Vilhelm

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra lýsti strax á sunnudagskvöld yfir andstöðu við þessi áform. Hún hafði þó heyrt af áhuga bankans á tryggingafélaginu fyrir nokkrum vikum en vísar til armlengdarsjónarmiða sem eiga að tryggja að ráðherra hafi ekki bein afskipti af bönkunum

„Það er þá á ábyrgð bankaráðs Landsbankans að upplýsa og vera í samskiptum við Bankasýsluna,“ segir fjármálaráðherra.

Misvísandi yfirlýsingar

Bankasýslan skipar alla sjö bankaráðsmenn Landsbankans og hefur óskað eftir skýringum frá þeim á aðdraganda þess að ákveðið var að festa kaup á TM. Ráðherra telur rétt að bíða eftir þeim svörum.

Bankasýslan skipar alla sjö fulltrúana sem sitja í bankaráði Landsbankans.Grafík/Hjalti

Þórdís Kolbrún sagði hins vegar í Facebook færslu sinni á sunnudag að þessi kaup á tryggingafélaginu yrðu ekki gerð með hennar samþykki án þess að Landsbankinn yrði seldur á sama tíma. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ítrekaði á Alþingi í gær að það kæmi ekki til greina.

Þessar yfirlýsingar eru ekki alveg á pari?

„Nei, ég átta mig auðvitað alveg á því hvað segir í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þar sem það er ekki á dagskrá að hefja sölu Landsbankans heldur er á dagskrá að klára sölu á Íslandsbanka,“ segir Þórdís Kolbrún. Ríkisstjórnin hefði afgreitt frumvarp um þá sölu frá sér í dag sem miðaði því að sölu á öllum hlut ríkisins í Íslandsbanka gæti lokið á næsta ári.

Ríkið á 98 prósent í Landsbankanum og segir fjármálaráðherra engan vafa leika á því að bankinn væri ríkisfyrirtæki.Vísir/Vilhelm

„En það segir heldur ekki í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar né eigendastefnu ríkisins þegar kemur að fjármálafyrirtækjum að það eigi einhvern veginn að þenja út ríkisbanka, kaupa fyrirtæki á markaði og gera þau að ríkisfyrirtækjum og stíga inn á tryggingamarkað,“ segir fjármálaráðherra.

Skýra þarf samskipti ráðherra og Bankasýslu

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir nauðsynlegt að skýra samskipti fjármálaráðherra og Bankasýslunnar.Vísir/Vilhelm

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir enga pólitíska umræðu hafa verið tekna um það hvort reka ætti Landsbankann með þeim hætti sem þarna birtist. Þarna hefði ákveðiðfrumhlaup átt sér stað..

„Og sýnir að það er ákveðið stjórnleysi til staðar. Svo má líka nefna að það átti að vera búið að leggja niður þessa Bankasýslu. Það þarf að komast til botns í því hvers konar samskipti hafa verið á milli fjármálaráðherra og bankasýslu undanfarin tvö ár eða eftir að þessi fjármálaráðherra tók við. Vegna þess að ég hef átilfinningunni að það hafi ekki verið mikil samskipti þarna á milli,“ segir Kristrún.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata segir Bankasýsluna óhæfa til að sinna sínu hlutverki.Stöð 2/Arnar

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata er furðulostin yfir að Bankasýslan haldi enn á eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum eftir yfirlýsingar um að leggja ætti hana niður.

„Að þetta mál hafi komið þeim í opna skjöldu held ég að sé enn ein ástæða þess að þessi stofnun er ekki fær um að sinna sínu hlutverki. Við hljótum að óska skýringa á því hvað er eiginlega í gangi hjá ríkisstjórninni sem hefur ekki hugmynd um hvað er í gangi í bönkum sem hún á nánast allan eignarhlutann í,“ sagði Þórhildur Sunna.


Tengdar fréttir

Aðalfundi Landsbankans frestað

Bankaráð Landsbankans ákvað á fundi sínum í dag að fresta aðalfundi bankans sem fara átti fram á morgun. Að höfðu samráði við Bankasýslu ríkisins hefur verið ákveðið að halda aðalfundinn föstudaginn 19. apríl.

Ekki í stjórnar­sátt­mála að ríkisvæða trygginga­fé­lög

Fjármálaráðherra segir það ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að selja hlut í Landsbankanum fyrr en sölu á Íslandsbanka verði lokið. Það samræmdist heldur ekki eigendastefnu stjórnvalda að Landsbankinn haslaði sér völl í tryggingastarfsemi.

„Þetta er að verða komið gott“

Formenn Miðflokksins og Samfylkingarinnar eru sammála um að fyrirhuguð sala ríkisins á Landsbankanum fari gegn eigandastefnu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin tali í kross og málið beri þess merki að hún sé ekki sammála um grundvallaratriði. 

Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin

Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×