Umfjöllun um eldsumbrot vísar ferðamönnum frá Jón Ísak Ragnarsson skrifar 19. mars 2024 22:17 Eldsumbrotin á Reykjanesskaga virðast draga úr komu ferðamanna til landsins. Vísir/Vilhelm Miklar umræður hafa skapast á Facebook-síðunni Bakland ferðaþjónustunnar um áhrif villandi fréttaflutnings erlendra miðla um eldsumbrotin á Reykjanesskaga á ferðaþjónustu í landinu. Borið hefur á afbókunum ferðamanna og hægst hefur á nýbókunum eftir hörmungarnar í Grindavík.
Lína Petra Þórarinsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu var til viðtals um málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Neyðarstig almannavarna - State of Emergency Umræðurnar á Facebook-síðunni snerust að miklu leyti um umfjöllun fréttamiðla um neyðarstig almannavarna, en svo virðist sem erlendir fréttamiðlar geri mikinn mat úr því. Fréttir lýsi því þá gjarnan yfir að Ísland lýsi yfir neyðarástandi og slái því upp í fyrirsagnir. Fréttaflutningurinn sé villandi og gefi í skyn að landið sé óöruggt þegar hættan er aðeins staðbundin í Grindavík. Slíkt sé ekki vænlegt til að lokka ferðamenn að landinu. Spurt var hvort ekki sé hægt að tóna „neyðarþetta og neyðarhitt“ niður. Nýleg frétt BBC um eldsumbrotin. Erlendum miðlum er tíðrætt um „State of emergency“Skjáskot Lína Petra Þórarinsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu skilur vel áhyggjur aðila í ferðaþjónustu. Hún segir umfjöllun erlendra fréttamiðla um neyðarstigið hafa verið mjög áberandi og einnig hafi samfélagsmiðlaumfjöllun verið mikil. Þetta hafi sérstaklega verið áberandi í aðdraganda fyrsta gossins í Grindavík og í framhaldinu af því í nóvember og desember. Íslandsstofa réðst í markaðsherferð Meðal verkefna Íslandsstofu er að vakta og greina umfjallanir um landið á erlendum miðlum. „Það er áhersla hjá okkur að koma út réttum skilaboðum inn á þessa miðla og við höfum náð góðum árangri í því,“ segir Lína. Hún segir að umfjöllun hafi batnað mikið frá því í nóvember og desember. Íslandsstofa hefur staðið í ströngu við að leiðrétta misskilning um jarðhræringarnar og hættuna sem steðjar af þeim. „Nú nýlega þá unnum við myndband fyrir samfélagsmiðla í samstarfi við veðurstofuna sem er svona Q&A (spurt og svarað) myndband sem við erum að birta á okkar miðlum,“ segir Lína. Neyðarástand á Íslandi. Frétt á New York post.Skjáskot Lína segir að talsvert hafi borið hafi á afbókunum ferðamanna í nóvember og desember og hægst hafi á nýbókunum líka. Lilja Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra hafi þá gripið inn í og sett hundrað milljónir króna í sérstakt markaðsátak. Þá hafi verið ráðist í markaðsherferð sem stóð yfir frá desemberlokum og út fyrstu tólf vikur ársins, sem er stærsti bókunargluggi sumarsins. Lína segir að vel hafi tekist til í þessari markaðsherferð. Það sjáist í mælikvörðum og gögnum um það hverjir horfi á efnið og bóki ferðir til landsins. Engin ferðatrygging á Íslandi? Þá segir einn meðlimur Baklands ferðaþjónustunnar að hann hafi verið með ferðamann hjá sér sem sagði að Ísland væri komið á lista tryggingarfélags yfir lönd sem ekki væri hægt að fá ferðatryggingu til. Þetta sé vegna neyðarstigsins. Ekki fylgir sögunni hvers lenskur ferðamaðurinn er. Lína segist ekki hafa heyrt af þessu. Vilja nýta athyglina Lína vill að lokum líta á jákvæðu hliðarnar og segir að hægt sé að nýta athyglina til góðs þegar upp er staðið. „Þetta styður til langs tíma ímynd áfangastaðarins sem staður sem býður upp á einstaka náttúru, og það sé ákveðin ævintýraupplifun að koma hingað. En við þurfum alltaf að standa vaktina þegar kemur að ímyndarsköpun Íslands,“ segir Lína.
Eldgos á Reykjanesskaga Ferðamennska á Íslandi Efnahagsmál Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Eldgosið toppar þrjú síðustu Eldgosið sem hófst á níunda tímanum á laugardagskvöld hefur nú staðið lengur en síðustu þrjúgos síðan í desember síðastliðnum. Það hefur nú staðið í tvo og hálfan sólarhring. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. 19. mars 2024 12:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Erlent Fleiri fréttir Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Sjá meira
Eldgosið toppar þrjú síðustu Eldgosið sem hófst á níunda tímanum á laugardagskvöld hefur nú staðið lengur en síðustu þrjúgos síðan í desember síðastliðnum. Það hefur nú staðið í tvo og hálfan sólarhring. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. 19. mars 2024 12:06