Innlent

„Greini­legt að peningastefnunefnd hefur á­kveðið að skjóta langt fram hjá“

Jón Þór Stefánsson skrifar
Vilhjálmur Birgisson segir ákvörðun peningastefnunefndar valda sér miklum vonbrigðum.
Vilhjálmur Birgisson segir ákvörðun peningastefnunefndar valda sér miklum vonbrigðum. Vísir/Vilhelm

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum valda sér miklum vonbrigðum. Stór hluti vinnumarkaðar hefur náð kjarasamningum, en þeir snerust að miklu leyti um að ná verðbólgu og vöxtum niður.

Meginvextir Seðlabankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent.

„Ég er fyrir miklum vonbrigðum á því að Seðlabankinn hafi ekki stigið eitthvert skref til lækkunnar vaxta eftir að stór hluti vinnumarkaðarins er búinn að semja til langs tíma með hófstilltum hætti. Verkalýðshreyfingin fór í einu og öllu eftir því sem Seðlabankinn óskaði eftir. Ég sagði eftir þá samninga að boltinn væri hjá Seðlabankanum. En það er greinilegt að peningastefnunefnd hefur ákveðið að skjóta langt fram hjá við fyrsta tækifæri til að sýna þjóðinn velvilja í því að verið væri að semja til langs tíma,“ segir Vilhjálmur í samtali við fréttastofu.

„Við skulum hafa það hugfast að nánast undantekningalaust þegar verið er að hækka stýrivexti þá er ætið talað um óvissu varðandi komandi kjarasamninga. Nú liggur fyrir að þeirri óvissu hefur verið eytt af stórum hluta.“

Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu um samninga Starfsgreinasambandsins og Eflingar mun að sögn Vilhjálms liggja fyrir seinna í dag. Félagsfólk í Fagfélögunum Matvís, VM og RSÍ samþykkti í gær kjarasamninga sína við Samtök atvinnulífsins.

„Ég skal fúslega viðurkenna það að ég átti von á því að Seðlabankinn myndi sýna íslensku launafólki, íslenskum heimilum og fyrirtækjum, og okkur öllum meiri skilning í því að stíga jákvætt skref til lækkunnar stýrivaxta, en þeir gera það ekki og valda mér vonbrigðum.“

Þrátt fyrir þetta segist Vilhjálmur trúa því að framundan sé lækkun á stýrivöxtum og verðbólgu. „Þótt að þessi tiltekna ákvörðun í dag hafi ekki leitt til lækkunar tel ég að vextir munu lækka hér á komandi mánuðum.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×