Innlent

Verð­bólga enn of mikil til að lækka vexti að mati Seðla­banka

Heimir Már Pétursson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nýgerða kjarasamninga jákvætt innlegg og þeir skapi fyrirsjáanleika. Hins vegar þurfi að ná verðbólgu enn meira niður áður en vextir verði lækkaðir.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nýgerða kjarasamninga jákvætt innlegg og þeir skapi fyrirsjáanleika. Hins vegar þurfi að ná verðbólgu enn meira niður áður en vextir verði lækkaðir. vísir/arnar

Björninn er ekki unninn í baráttunni við verðbólguna þótt samið hafi verið um hóflegar launahækkanir að mati Seðlabankans. Enn þurfi að draga úr þenslu og tryggja að launahækkunum verði ekki velt út í verðlagið.

Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í morgun að meginvextir verði áfram óbreyttir í 9,25 prósentum sem nú þegar hefur kallað á hörð viðbrögð meðal forystumanna í verkalýðshreyfingunni. Nýgerðir kjarasamningar á almenna vinnumarkaðnum til fjögurra ára með hóflegum launahækkunum voru einmitt hugsaðir sem innlegg til hjöðnunar verðbólgu og þar með lækkunar vaxta.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir samningana jákvætt innlegg en verðbólga væri hins vegar enn mikil. Hún væri nánast þreföld miðað við verðbólgumarkmið Seðlabankans.

Skiptir engu máli um hvað ávinnumarkaðnum upp á vaxtaákvarðanir Seðlabankans?

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir skipta miklu máli að fyrirtæki hleypi launahækkunum ekki út í verðlagið eigi að takast að ná niður verðbólgu og vöxtum.Stöð 2/Sigurjón

„Það er ekki rétt. Við fögnum þessum samningum. Hins vegar er verðbólga enn mjög mikil. Hún er 6,6 prósent. Það skiptir líka mjög miklu máli að þessir samningar gangi eftir með þeim hætti að fyrirtæki bregðist ekki við með því að hækka vöruverð í kjölfar þeirra,“ segir Ásgeir. Eftir gerð þar síðustu kjarasamninga hafi fyrirtæki velt umsömdum launahækkunum út í verðlagið.

Þenslan íhagkerfinu væri enn mikil og Seðlabankinn þurfi að tryggja að verðbólgan fari niður og þannig að samningarnir leiði til stöðugleika og viðhaldi kaupmætti. Enn sem komið er héldi peningastefnunefnd því vöxtunum óbreyttum. Vonandi dragi úr þenslu og verðbólguvæntingum á næstu vikum og mánuðum. En næsti vaxtaákvörðunardagur er hinn 8. maí.

„Við álítum að við séum að styðja við þessa samninga með því að ná verðstöðugleika. Tryggja það að við getum þá lækkað vexti vel og mynduglega þegar rétti tíminn kemur,“ segir seðlabankastjóri.

Vandinn væri að íslenska hagkerfið hefði vaxið mun meira en hagkerfi annarra vestrænna ríkja. Samanlagður hagvöxtur síðustu þriggja ára hefði verið tuttugu prósent og enn væru vísbendingar um þenslu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.

„Það er bara mjög erfitt að ætla að vaxa svona hratt. Sérstaklega fyrir þróað land. Þetta setur auðvitað þrýsting til dæmis á fasteignamarkaðinn. Fasteignaverð er enn að hækka þótt við séum komin með vexti þetta hátt. Ég vil benda á að Seðlabankinn hefur líka beitt sér með mjög öflugum hætti til að koma í veg fyrir útlánabólu eða þenslu í fjármálakerfinu. Við erum að sjá kerfi sem er í tiltölulega góðu jafnvægi en þurfum bara að ná verðbólgunni niður,“ segir Ásgeir Jónsson.


Tengdar fréttir

Undrast að það séu hreinlega ekki óeirðir á Íslandi

Formaður VR segist verulega hugsi yfir því hvað landsmenn séu tilbúnir að láta bjóða sér. Þrátt fyrir nýundirritaða kjarasamninga ákvað peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum. Ragnar Þór segir að annaðhvort verði Alþingi að grípa inn í eða fólkið í landinu að rísa upp.

„Greinilegt að peningastefnunefnd hefur ákveðið að skjóta langt fram hjá“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum valda sér miklum vonbrigðum. Stór hluti vinnumarkaðar hefur náð kjarasamningum, en þeir snerust að miklu leyti um að ná verðbólgu og vöxtum niður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×