Innlent

Lönduðu eld­snemma í morgun þrátt fyrir eld­gosið

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir gott að halda í einhvern hluta af þeim hversdagsleika sem hann þekkti fyrir jarðhræringarnar. Sturla GK landaði í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun.
Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir gott að halda í einhvern hluta af þeim hversdagsleika sem hann þekkti fyrir jarðhræringarnar. Sturla GK landaði í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. vísir/Vilhelm

Áhöfn á Sturlu GK og landverkafólk útgerðafélagsins Þorbjarnar láta eldgosið sem er í námunda við Grindavík ekki á sig fá og lönduðu í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir baráttuvilja í sínu fólki en það sé óskandi að náttúruöflin drægju sig í hlé.

Gasmengun berst í dag til suðurs og suðausturs, hennar gæti orðið vart á Suðausturlandi, Þorlákshöfn og jafnvel í Vestmannaeyjum. Elísabet Pálmadóttir náttúruvársérfræðingur segir virkni eldgossins stöðuga.

„Það gýs ennþá úr sjö gígum og þaðan rennur hraunið i virkum taumi suður. Þannig að það er ekki mikil hreyfing á jöðrunum. Hraunið er í rauninni bara að byggja sig upp í miðjunni suður af gígunum og er að þykkna þar. Landmælingar flugu þarna yfir í gær og mældu og mælingar frá því flugi sýna að hraunið er orðið tólf, fjórtán metra hátt þar sem það er þykkast,“ segir Elísabet.

Þrátt fyrir eldgos í námunda við Grindavík þá var landað í morgun. Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar, er fæddur og uppalinn í bænum.

„Já, í morgun þá byrjaði löndun hjá okkur eldsnemma og svo um leið og fiskurinn var kominn upp í hús þá fórum við að fletja og flaka.“

Gunnar Tómasson er framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Þorbjarnar í Grindavík.Vísir/Sigurjón

Allajafna hefur þessi tími verið sá annasamasti í Grindavík, nú í vertíðarlok. Gunnar segir að þau hjá Þorbirni hafi ekki verið í nokkrum vafa um að landa í morgun þrátt fyrir gosið.

„Eins og þetta er í dag þá er þetta nú svolítið langt frá okkur. Við köllum þetta langt frá okkur þegar þetta er komið upp á Sundhnúk þannig að við teljum okkur ekki vera í neinni hættu “

En er einhver von um að lífið í Grindavík verði samt eftir náttúruhamfarirnar?

„Já, ég ætla nú að leyfa mér að vona það, auðvitað er það rétt hjá þér að það er baráttuvilji í fólki og það vill halda í það sem var í Grindavík, vonandi verður það gott áfram þó það verði kannski ekki eins.“

En þangað til sé gott að gleyma sér í vinnu og einhvers konar hversdagsleika.

„Það er bara mjög mikil gleði í því og það hefur náttúrulega hjálpað okkur mikið að við höfum fengið mikla hvatningu, bæði frá okkar sjómönnum og landverkafólki að halda áfram því fólki finnst gaman að vinna og gaman að hittast og það skiptir miklu máli,“ segir Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar.


Tengdar fréttir

Vinna hafin við nýjan Grindavíkurveg

Vinna hófst í dag við að leggja veg yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í eldgosinu sem nú stendur yfir. Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu telur að vegkaflinn verði um 300 til 400 metrar á lengd. Verkið mun taka nokkra daga.

Landris geti leitt til lengra goss

Sérfræðingur hjá Almannavörnum segir núverandi eldgos skera sig úr hinum þremur sem orðið hafa á Reykjanesskaganum síðustu mánuði að því leyti að landris sé hafið að nýju meðan það gýs enn. Það geti leitt til þess að eldgosið, sem er þegar orðið lengra en síðustu þrjú, lengist enn fremur. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×