Skoðun

Er sniðugt að vera með til­greinda sér­eign?

Guðný Helga Lárusdóttir skrifar

Við höfum eflaust mörg heyrt talað um tilgreinda séreign en ekki almennilega áttað okkur á hvað felst í henni. Þar sem ég starfa við lífeyrismál er ég oft spurð hvort sniðugt sé að vera með tilgreinda séreign. Til þess að geta svarað þeirri spurningu er mikilvægt að skilja grundvallaratriði lífeyriskerfisins. Okkur ber skylda til að greiða af launum í lífeyrissjóð frá 16 ára aldri til 70 ára aldurs. Framlag okkar er 4% af launum en framlag launagreiðanda að minnsta kosti 11,5%. Í því samhengi er talað um að iðgjöld séu greidd í lífeyrissjóð. Allir lífeyrissjóðir eru að hluta eða heild svokallaðir samtryggingarsjóðir þar sem sjóðfélagar tryggja hver öðrum eftirlaun til æviloka og verja sjóðfélaga og fjölskyldur þeirra fyrir tekjumissi vegna örorku eða andláts. Lífeyrissjóðir eru samt sem áður eins mismunandi og þeir eru margir. En, hvað meina ég með því?

Í fyrsta lagi eru sumir sjóðir með skylduaðild en aðrir ekki. Skylduaðild að lífeyrissjóði felur í sér að samkvæmt mörgum ráðningar- eða kjarasamningum verður þú að greiða í ákveðinn lífeyrissjóð. Aðrir sjóðir eru opnir og með frjálsa aðild.

Í öðru lagi er uppbygging lífeyrissjóða misjöfn. Sumir eru samtryggingarsjóðir að öllu leyti en þó hefur orðið sífellt algengara að þeir bjóði sínum sjóðfélögum að allt að 3,5% iðgjalds fari í tilgreinda séreign. Aðrir sjóðir eru blandaðir og leggja meiri áherslu á séreignarmyndun. Þeir sem eru með sinn skyldulífeyrissparnað í þess háttar sjóðum eru því líklega nú þegar að ráðstafa meira en 3,5% í séreign. Ef sjóðfélagi fellur frá erfist séreign ólíkt því sem á við um iðgjöld og ávöxtun þeirra í samtryggingu.

Tilgreind séreign

Lífeyrissjóðir sem bjóða sjóðfélögum sínum tilgreinda séreign eru gjarnan sjóðir með skylduaðild. Sjóðfélagarnir geta því almennt ekki valið sér lífeyrissjóð fyrir sinn skyldulífeyrissparnað en hafa þó val um að ráðstafa 3,5% í tilgreinda séreign. Vilji sjóðfélagi tilgreinda séreign hefur hann frelsi til að velja í hvaða sjóði hún eigi að vera.

Vert er að benda á helstu eiginleika tilgreindrar séreignar.

  • Með því að greiða í tilgreinda séreign fer minna í samtryggingu.
  • Samtrygging tryggir þér eftirlaun, maka-, barna- og örorkulífeyri.
  • Því yngri sem þú ert því meiri samtryggingarréttindi færðu almennt fyrir það iðgjald sem þú greiðir í lífeyrissjóð.
  • Tilgreind séreign er þín eign og erfist eins og aðrar séreignartegundir.
  • Fjölbreytt úrval fjárfestingarleiða stendur til boða fyrir séreignarsparnað.
  • Heimilt er að nýta tilgreinda séreign í skattfrjálsu úrræði fyrstu íbúðar. Ef þú ert með viðbótarlífeyrissparnað nýtist þó tilgreinda séreignin einungis í þeim tilvikum sem hámarksnýtingu er ekki náð með viðbótarlífeyrissparnaðinum.
  • Tilgreind séreign eykur sveigjanleika við útgreiðslur og hægt er að óska eftir mánaðarlegum greiðslum frá 62 til 67 ára aldurs. Frá 67 ára aldri eru útgreiðslur frjálsar.

Gott er að hafa í huga að lífeyrissparnaður er alla jafna stærsti sparnaður okkar og því er eðlilegt að hafa skoðun á uppbyggingu hans. Stór hluti landsmanna getur ekki valið sér lífeyrissjóð fyrir sinn skyldulífeyrissparnað. Ef þú þarft að greiða í ákveðinn sjóð en mátt ráðstafa hluta í tilgreinda séreign þá er um að gera að hafa skoðun á málinu. Er sniðugt að vera með tilgreinda séreign? Hún veitir að minnsta kosti þeim sem almennt geta ekki valið sér lífeyrissjóð einhvers konar frelsi til að hafa áhrif á ráðstöfun síns sparnaðar.

Höfundur er sérfræðingur á mörkuðum hjá Arion banka.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×