Innlent

Sjálf­stæðis­menn funda um mögu­legt fram­boð Katrínar

Árni Sæberg skrifar
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að boða þingflokkinn á fund á morgun í ljósi þeirrar óvissu sem er uppi varðandi mögulegt forsetaframboð forsætisráðherra og áhrif þess.

„Þingið er ekki að störfum eins og er þannig ég hafði ekki ætlað mér að hafa fund í vikunni. En mér finnst í ljósi stöðunnar eðlilegt að við ræðum okkar á milli hvernig breytt staða gæti litið út, ef af henni verður. Þá munu auðvitað hlutir gerast hratt,“ segir Hildur í samtali við Vísi. Mbl greindi frá fundarboðinu.

Ýmislegt gæti verið í kortunum

Hugsanlegt framboð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra hefur verið mikið í umræðunni undanfarið, ekki síst með tilliti til ríkisstjórnarsamstarfs Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Hildur segir ekki tímabært að ræða möguleg áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Bæði liggi ekkert fyrir um ákvörðun Katrínar og fyrir liggi að ýmislegt gæti verið í kortunum fari hún fram. Það verði það sem rætt verður á fundinum á morgun.

Veit ekkert meira en hver annar

Hildur segir að hún hafi engar frekari upplýsingar um hug Katrínar en hver annar. Henni finnist þó sá tími sem liðið hefur benda til þess að Katrín fari fram frekar en ekki. „En ég veit ekkert meira um það en þú.“

Þá segir hún að þingmenn Sjálfstæðisflokksins séu tiltölulega spakir yfir umræðunni. Hún hafi ekki heyrt af öðru. „Við erum ýmsu vön,“ sagði Hildur hlæjandi að lokum.

Framsóknarmenn pollrólegir

Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ekkert hafa verið rætt eða ákveðið um þingflokksfund vegna mögulegs framboðs Katrínar.

Ekki hefur náðst í Katrínu Jakobsdóttur við vinnslu fréttarinnar. Lára Björg Björnsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra óskaði eftir skriflegri fyrirspurn um málið. Þá hefur ekki náðst í Orra Pál Jóhannsson, þingflokksformann Vinstri grænna.


Tengdar fréttir

Katrín ekki með sigur vísan bjóði hún sig fram

Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segist ekki vera viss um að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eigi sigurinn vísan í forsetakosningum bjóði hún sig fram. Hann segir þjóðina vera mikið ólíkindatól þegar það kemur að forsetakosningum.

Hugsanleg framboðslén stofnuð

Netverjar grafa oft upp ótrúlegustu hluti en svo virðist sem bæði Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, sem báðar hafa verið orðaðar við embætti forseta, hafi stofnað lén eftir eigin nafni. Sami greiðandi er á léni Katrínar og katrinjakobsdottir.is sem stofnað var árið 2006.

„Geri hún það, þá býð ég mig fram“

Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir segist ætla að bjóða sig fram til forseta ef Katrín Jakobsdóttir forstætisráðherra gefur kost á sér í embættið. Það geri hún af því hún treysti ekki Katrínu til embættisins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×