Sport

Kóngur og drottning komu bæði frá Ís­landi: Fram­tíð Cross­Fit á Ís­landi björt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bergrós Björnsdóttir og Bjarni Leifs Kjartansson voru hraustustu táningarnir á Mallorca um síðustu helgi.
Bergrós Björnsdóttir og Bjarni Leifs Kjartansson voru hraustustu táningarnir á Mallorca um síðustu helgi. @theprogrmcrown

Ísland vann tvöfaldan sigur í krúnukeppni krakkanna á Mallorca á Spáni þar sem komu saman efnilegustu CrossFit krakkar Evrópu.

The Crown keppnin var sett á laggirnar árið 2023 af John Christian Singleton hjá The Program og þar mætast bestu CrossFit táningar víðs vegar að úr heiminum.

Sex strákar og sex stelpum var boðið til Mallorca á Spáni þar sem þau héldu til í sama húsi og keppti í hinum ýmsu þrautum á svæðinu. Þessar framtíðarstjörnur íþróttarinnar fengu þarna frábært tækifæri til að kynnast vel og þetta var því einstök upplifun fyrir þau.

Ísland átti þrjá keppendur af tíu og bæði gullverðlaunin í keppninni fóru til Íslands.

Bergrós Björnsdóttir og Bjarni Leifs Kjartansson voru nefnilega hraustustu táningarnir á eyjunni í þetta skiptið. Þriðji íslenski keppandinn, Rökkvi Guðnason, endaði í fjórða sætinu.

Bergrós hélt upp á sautján ára afmælið sitt í febrúar en hinn nítján ára gamli Bjarni verður tvítugur í næsta mánuði.

Bergrós og Bjarni höfðu auðvitað minnt á sig í aðdraganda mótsins enda urðu þau bæði Íslandsmeistarar í opnum flokki í CrossFit í vetur. Bergrós varð líka efst í flokki sextán til sautján ára stelpna í heiminum í opna hluta undankeppni heimsleikanna.

Bæði unnu þau Bergrós og Bjarni fimm greinar af tíu. Bjarni endaði með 19 stig þar sem markmiðið er að vera með sem fæst stig. Bjarni vann titilinn með sjö stiga mun en í öðru sæti varð heimamaðurinn Marti Pla frá Spáni en þriðja sætið tók Hugo Jansson frá Svíþjóð.

Bergrós endaði með 22 stig en hún varð átta stigum á undan Hannah Wendt frá Bretlandi sem endaði í öðru sætinu. Þriðja varð síðan Marie Rognstad frá Noregi.

Bergrós varð meðal þriggja efstu í öllum greinum nema tveimur. Hún endaði í fimmta sætinu í sundinu og í fjórða sætinu í úthlaupinu. Kannski sund og hlaup á dagskrá á næstunni. Hver veit? Hreinræktuðu CrossFit greinarnar komu aftur á móti mjög vel út hjá henni.

Sundið var líka lélegasta greinin hjá Bjarna en hann varð í fyrsta eða öðru sæti í sjö af níu greinum sem er mögnuð frammistaða.

Það er ljóst á þessu að við Íslendingar erum að eignast nýjar ungar CrossFit stjörnur sem verður fróðlegt að fylgjast með í fjórðungsúrslitum undankeppni heimsleikanna. Það væri gaman að sjá þau komast alla leið í undanúrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×