Íslenski boltinn

Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Tindastóli 8. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bryndís Rut Haraldsdóttir er fyrirliði Tindastóls. vísir/hulda margrét

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Tindastóli 8. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild kvenna með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með tveimur leikjum sunnudaginn 21. apríl.

Íþróttadeild spáir Tindastóli 8. sæti Bestu deildarinnar í sumar og liðið endi einu sæti neðar en á síðasta tímabili.

Tindastóll lék í fyrsta sinn í efstu deild 2021 en stoppaði stutt við þá. Liðið leiðrétti þau mistök hins vegar strax, lenti í 2. sæti Lengjudeildarinnar 2022 og vann sér sæti í Bestu deildinni á ný. Stólarnir héldu sér svo uppi í fyrra með því að enda í 7. sæti. Liðið leikur því áfram í Bestu deildinni í sumar.

grafík/bjarki

Stærstu tíðindin af Króknum í vetur eru þau að Murielle Tiernan er farin í Fram. Bandaríski framherjinn lék í fimm ár með Stólunum og skoraði 98 mörk í 102 deildarleikjum fyrir þá. Reyndar voru aðeins tíu í Bestu deildinni en Murielle skilur samt eftir sig stórt skarð sem erfitt gæti reynst að fylla.

grafík/bjarki

Sú sem á að gera það er Jordyn Rhoades, markahæsti leikmaður í sögu Kentucky háskólans vestanhafs. Mikil ábyrgð er á hennar herðum en hún þarf líka að fá hjálp hjá félögum sínum í framlínunni, meiri en Murielle fékk í fyrra. Tindastóll skoraði aðeins fjórtán mörk í hefðbundinni deildarkeppni en lagaði tölfræðina talsvert með því að skora tíu mörk í úrslitakeppninni.

Stólarnir fengu einnig annan leikmann úr bandaríska háskólaboltanum; miðjumanninn Gabrielle Johnson. Þá var mikilvægt að halda markverðinum Monicu Wilhelm og varnarmanninum Gwendolyn Mummert frá síðasta tímabili.

Í leikmannahópi Tindastóls er nokkuð þéttur kjarni heimastúlkna og þjálfarinn, Halldór Jón Sigurðsson, er reyndur og fær. Hann vill eflaust sjá Stólana nýta heimavöllinn aðeins betur en í fyrra. Liðið vann til að mynda fleiri útileiki (4) en heimaleiki (3) í fyrra. Ef það verður lagað aukast möguleikar Tindastóls á að vera réttu megin við strikið í lok móts verulega.

Lykilmenn

  • Bryndís Rut Haraldsdóttir, 29 ára varnarmaður
  • Laufey Harpa Halldórsdóttir, 23 ára varnarmaður
  • Jordyn Rhodes, sóknarmaður

Fylgist með

Birgitta Rún Finnbogadóttir fékk nasanefinn af Bestu deildinni í fyrra og spilaði mikið í Lengjubikarnum í vetur. Líkt vinkona hennar í Tindastólsliðinu, Elísa Bríet Björnsdóttir, er Birgitta frá Skagaströnd. Og þrátt fyrir að vera fædd 2008 á Birgitta eflaust eftir að láta mikið að sér kveða í sumar.

Í besta/versta falli

Ef Rhodes fyllir Murielle-skarðið og Stólarnir ná að byggja ofan á gott síðasta sumar getur liðið endurtekið leikinn frá því í fyrra og náð 7. sætinu. Úrslitakeppni efri hlutans virðist hins vegar ansi fjarlægur draumur. En ef hlutirnir ganga ekki upp og Stólarnir falla ofan í fen annars tímabilsins gætu þeir hæglega fallið.


Tengdar fréttir






×