Innlent

Kvöld­fréttir Stöðvar 2

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Erla Björg Gunnarsdóttir fréttaþulur.
Erla Björg Gunnarsdóttir fréttaþulur.

Afgreiðsla meirihluta atvinnuveganefndar á búvörulögum stappar nærri spillingu að mati formanns Neytendasamtakanna. Nokkur samtök hafa látið vinna fyrir sig greinargerð um málið, þau útiloka ekki málaferli og segja brotið gegn stjórnarskrá.

Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum einnig við stjórnmálafræðing í beinni um fyrstu daga nýrrar ríkisstjórnar. Nú þegar hafa hátt í fjörutíu þúsund manns lagt nafn sitt við undirskriftarsöfnun gegn Bjarna Benediktssyni í embætti forsætisráðherra.

Þá sjáum við hvar nýtt neyslurými á að rísa en teymisstjóri hjá Rauða krossinum segir aðstæður vímuefnanotenda hafa versnað síðustu mánuði eftir að fyrra rými var lokuð. Nýtt úrræði sé því mikið fagnaðarefni.

Flugfélagið Air Atlanta hefur fest kaup á fimm nýjum breiðþotum og stefnir á stærsta ár í sögu félagsins. Kristján Már Unnarsson segir okkur allt um þetta og svo verðum við í beinni frá Spilavinum þar sem risavaxið púsl er til sýnis - en það er svo stórt að eigandinn hafði hreinlega ekki pláss fyrir það heima hjá sér. Í Íslandi í dag kynnir Vala Matt sér spennandi hugmyndir fyrir veisluna nú þegar farið er að birta til og vora.

Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar og Stöðvar 2 klukkan 18:30.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×