Íslenski boltinn

Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 6. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Andrea Mist Pálsdóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna á síðasta tímabili. vísir/hulda margrét

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 6. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild kvenna með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með tveimur leikjum sunnudaginn 21. apríl.

Íþróttadeild spáir Stjörnunni 6. sæti Bestu deildarinnar í sumar og liðið endi tveimur sætum neðar en í fyrra.

Eftir frábært tímabil 2022, þar sem Stjarnan endaði í 2. sæti, voru talsverðar væntingar gerðar til Garðbæinga fyrir síðasta tímabil, ekki síst eftir heimkomu Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur. Stjörnukonur voru hins vegar aldrei í neinni toppbaráttu og eftir fyrri umferðina voru þær í 7. sæti. Fjórða sætið varð svo niðurstaðan að lokum og Stjörnunni mistókst því að næla sér í Evrópusæti.

grafík/bjarki

Fá lið í Bestu deildinni hafa orðið fyrir jafn mikilli blóðtöku og Stjarnan í vetur. Liðið hefur misst fjóra lykilmenn úr byrjunarliðinu og munar um minna. 

Jasmín Erla Ingadóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir fóru í Val, Heiða Ragney Viðarsdóttir í Breiðablik og landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir fór til Vålerenga í Noregi. Þetta eru risastór skörð sem hafa verið höggvin í lið Garðbæinga.

grafík/bjarki

Stjarnan hefur fengið fjóra leikmenn fyrir átök sumarsins. Miðjumaðurinn efnilegi Henríetta Ágústsdóttir kom frá HK, sóknarmaðurinn Esther Rós Arnarsdóttir frá FH og svo komu hinar bandarísku Hannah Sharts og Caitlin Cosme. Sharts er varnarmaður sem varð tvöfaldur meistari í Finnlandi á síðasta tímabili en Cosme er miðjumaður sem lék síðast með Orlando Pride í Bandaríkjunum.

Eftir að hafa bætt sig á hverju ári síðan Kristján Guðmundsson tók við liðinu fyrir tímabilið 2019 tók Stjarnan skref aftur á bak á síðasta tímabili og það er hætta á að liðið gæti tekið annað skref í ranga átt í sumar. Leikmannahópurinn er þó nokkuð þéttur, þótt skrautfjaðrir hafi verið plokkaðar í burtu, og Kristján er afar fær þjálfari.

Hans stærsti hausverkur er sóknarleikur Stjörnunnar. Hann var misjafn í fyrra og það fór mikið úr honum með brotthvarfi Sædísar og Jasmínar. Gyða Kristín Gunnarsdóttir skoraði aðeins eitt mark í fyrra og gera mun betur í þeim efnum í sumar. En Stjörnuna vantar sárlega afgerandi sóknarmann. 

Vörnin ætti að vera minna vandamál en það er erfitt að sjá Stjörnuna gera betur en í fyrra, allavega eins og leikmannahópur liðsins er skipaður núna.

Lykilmenn

  • Anna María Baldursdóttir, 29 ára varnarmaður
  • Andrea Mist Pálsdóttir, 25 ára miðjumaður
  • Gyða Kristín Gunnarsdóttir, 22 ára sóknarmaður

Fylgist með

Fanney Lísa Jóhannesdóttir er einn allra efnilegasti leikmaður landsins. Þessi markheppni framherji er fæddur 2009 og á framtíðina fyrir sér. Fanney spilaði talsvert með Stjörnunni í vetur og skoraði meðal annars eitt mark í Lengjubikarnum. Hún hefur skorað þrjú mörk í fimm leikjum fyrir yngri landslið Íslands.

Í besta/versta falli

Stjörnuliðið er nokkuð ungt og það er eins og það sé komið aftur á núllpunkt eftir tímabilið frábæra 2022. Í allra, allra besta falli nær Stjarnan 3. sætinu en ef allt gengur á afturfótunum gæti liðið misst af sæti í úrslitakeppni efri hlutans. En þá þarf mikið að ganga á.


Tengdar fréttir






×