Enski boltinn

Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bruno Fernandes og félagar í Manchester United fá ekki mikla hjálp í baráttu sinni fyrir sæti í Meistaradeildinni.
Bruno Fernandes og félagar í Manchester United fá ekki mikla hjálp í baráttu sinni fyrir sæti í Meistaradeildinni. AP/Kirsty Wigglesworth

Stuðningsmenn Manchester United grínast kannski með ófarir enskra erkifjenda sinna í Evrópukeppnum þessa dagana en gera sér ef til vill ekki grein fyrir því að það hefur bein áhrif á möguleika þeirra sjálfra að vera með í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Vonir Englands um að fá aukasæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð veiktust mikið í vikunni. Ástæðan er að Manchester City og Arsenal duttu úr leik í Meistaradeildinni og Liverpool og West Ham eru á góðri leið með að detta úr Evrópudeildinni. Þarna missa ensku liðin af mörgum stigum í styrkleikaröð UEFA.

Ítalir eru nánast öruggir með annað af þessum tveimur bónussætum. Þau eru veitt því landi sem fá flest stig frá sínum félögum í Evrópukeppnunum á þessu tímabili.

Keppnin um hitt sætið stendur aðallega á milli Englands og Þýskalands. Það bjuggust flestir við því að ensku liðin myndu gera nóg til að tryggja þetta sæti en þessi vika breytti miklu um það.

Það er ekki nóg með að ensku liðin detta úr leik hver á fætur öðru þá komust tvö þýsk lið, Bayern München og Borussia Dortmund, í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Bayer Leverkusen er líka í frábærri stöðu að komast áfram í einvígi sínu á móti West Ham í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Þarna falla mörg dýrmæt stig til Þýskalands.

Þetta eru því mjög slæmar fréttir fyrir lið eins og Manchester United sem á smá möguleika á því að ná fimmta sætinu í ensku úrvalsdeildinni en enn minni að ná fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni.

United er nú þrettán stigum frá fjórða sætinu (Aston Villa) og tíu stigum frá fimmta sætinu (Tottenham).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×