Innlent

Helga gert að rann­saka slysa­sleppingarnar

Jakob Bjarnar skrifar
Niðurstaða ríkissaksóknara er sú afturkalla skuli ákvörðun Helga Jenssonar lögreglustjóra um niðurfellingu á rannsókn á slysasleppingum úr sjókvíum fyrir vestan.
Niðurstaða ríkissaksóknara er sú afturkalla skuli ákvörðun Helga Jenssonar lögreglustjóra um niðurfellingu á rannsókn á slysasleppingum úr sjókvíum fyrir vestan. vísir/einar/lögreglan

Ákvörðun Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, þess efnis að hætta rannsókn á slysasleppingum fyrir vestan, hefur verið felld úr gildi.

Þetta er niðurstaða ríkissaksóknara eftir að ákvörðun Helga var kærð til hans. Andstæðingar sjókvíaeldis fagna. Niðurstaða hans var að um væri að ræða hagsmuni alls almennings og því ekki loku fyrir skotið að kærendur hafi haft hagsmuna að gæta af úrlausn málsins. Enda liggur fyrir að mikill fjöldi eldislaxa slapp úr fiskeldisstöð Arctic Sea Farm en laxar sem raktir hafa verið til umræddrar kvíar hafa veiðst í ám landsins.

„Almenningur allur hefur hagsmuni af því að villtum ferskvatnsfiskstofnum sé ekki spillt með neikvæðum vistfræðiáhrifum. Verða kærur kærenda því teknar til efnislegrar skoðunar,“ segir meðal annars í ítarlegri  niðurstöðu Ríkissaksóknara.

Ásetningur sem og gáleysi nægi til refsiábyrðar

Ríkissaksóknari segir jafnframt að umbúnaði við fiskeldið hafi verið áfátt og ekki farið eftir gildandi verklagsreglum og ákvæðum reglugerðar né laga sem um starfsemina gilda. Þetta leiddi til þess að eldisfiskur slapp úr fiskeldisstöðinni.

„Þá liggur ekkert fyrir um að kærði eða aðrir sem refsiábyrgð bera samkvæmt refsiákvæðinu hafi aðhafst til að tryggja að unnið væri eftir verklagsreglum.“

Samkvæmt ákvæðinu bera stjórnarmenn og framkvæmdastjóri rekstrarleyfishafa refsiábyrgð. Kærði er samkvæmt eigin framburði forstjóri ASF og nú skráður sem stjórnarformaður. Á þeim tíma sem meint brot átti sér stað var Hildur Árnadóttir skráður stjórnarformaður. Bæði eru þau nú skráð sem raunverulegir eigendur ASF. Ekki var tekin skýrsla af Hildi Árnadóttur við rannsókn málsins, þrátt fyrir að hún hafi á þeim tíma verð skráður stjórnarformaður ASF.“

Ákvörðun ríkissaksóknara er afdráttarlaus. Hann segir að ásetningur og gáleysi nægi til refsiábyrðar.

„Ríkissaksóknari fellst ekki á túlkun lögreglustjóra á orðalaginu ,„ef sakir eru miklar“. Tekið er undir túlkun kærenda á að orðalagið vísi til þess að refsimörkin séu fésekt en ef sakir eru miklar geti refsing orðið allt að tveggja ára fangelsi.

Helgi misskildi eða skildi ekki túlkun refsiábyrgða

Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga, er einn kærenda en þeir voru alls um þrjátíu talsins. 

Hann segir í samtali við Vísi að nú hljóti Lögreglustjórinn á Vestfjörðum að taka málið upp aftur og rannsaki það þá af alvöru. Spurður hvort hann sé hæfur til þess eftir það sem á undan sé gengið segir Gunnar Örn að þeir hafi, á sínum tíma, bent á ákveðna hættu á vanhæfi.

„Það var ekki fjallað efnislega um það í þessari niðurstöðu. Og þarf að una því. En þetta er góð viðurkenning á því að aldrei var framkvæmd nein rannsókn. Þetta er vel ígrunduð ákvörðun ríkissaksóknara þar sem hann metur ýmsa þætti málsins. Og fjallar í löngu máli um misskilning lögreglustjórans á túlkun refsiákvæða.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×