Innlent

Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þór­kötlu

Árni Sæberg og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Grindvíkingar vilja eignir sínar keyptar strax, meira að segja börnin.
Grindvíkingar vilja eignir sínar keyptar strax, meira að segja börnin. Vísir/Vilhelm

Grindvíkingar og stuðningsmenn þeirra söfnuðust saman á Austurvelli í dag til þess að mótmæla vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu. Krafan er einföld, þeir vilja fá greitt strax.

Boðað var til mótmælanna á Facebook í gær og ríflega hundrað manns lögðu leið sína á Austurvöll. Fréttamaður tók nokkra Grindvíkinga tali.

Hverjar eru kröfurnar, af hverju eruð þið hérna?

„Bara að fá borgað núna strax út úr Þórkötlu. Þetta er búið að taka alveg rosalega langan tíma og mörg okkar eru með skuldbindingar sem við þurfum að standa við. Ég til dæmis þarf að borga tvö þúsund krónur á hverjum einasta degi í vexti af yfirdráttarheimild sem ég tók til að geta keypt mér húsnæði. Ég ætlaðist til þess að vera með þessa yfirdráttarheimild í einhverja daga, en núna er ég búin að vera með hana í tvo mánuði,“ segir Andrea Ævarsdóttir.

Grindvíkingar telja vinnubrögð Þórkötlu ekki upp á marga fiska.Vísir/Vilhelm

Býr inni á pabba

Birna Rún Arnarsdóttir hefur búið ásamt stórri fjölskyldu sinni inni á pabba hennar Arnari síðan rýma þurfti Grindavík.

„Við erum búin að vera sjúklega heppin í þessu ferli en engu að síður er kominn tími á að við getum keypt okkur nýtt.“

Þessum Grindvíkingi þykir Þórkatala hafa valdið meiri skaða en sjálf eldgosin.Vísir/Vilhelm

Ekki rétti tíminn til þess að finna upp hjólið

Ljóst er að uppkaup á mörg hundruð eignum Grindvíkinga eru umfangsmikið verkefni. Andrea segir að leysa hefði verkefnið með einfaldari hætti. Nú hafi ekki verið tíminn til þess að búa til nýja rafræna lausn. Grindvíkingar hefðu glaðir gengið frá sínum málum upp á gamla mátann.

„Við getum alveg gert þetta á pappírum. Þetta er ekki rétti tíminn til þess að finna upp hjólið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×