Innlent

Helga ekki til­búin að henda inn hand­klæðinu

Jakob Bjarnar skrifar
Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að sjá til enn að sinni, með framboð sitt. Hún hefur fulla trú á að hún eigi erindi.
Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að sjá til enn að sinni, með framboð sitt. Hún hefur fulla trú á að hún eigi erindi. vísir/vilhelm

Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi kallar eftir stuðningi landsmanna. Helga segist jarðtengd, hún viti að vonin sé ekki mikil en hún er ekki tilbúin að henda inn handklæðinu alveg strax.

„Hvað getur maður sagt? Þessir lokametrar. Vika er langur tími í pólitík,“ segir Helga Þórisdóttir. En það er að koma á daginn að hún er ekki eins þekkt meðal almennings og hún hugði. Það segja skoðanakannanir. Helga er að átta sig á því að hún er óþekkti embættismaðurinn. Sem þýðir að hún á við mótsagnakennd atriði að eiga.

Segist jarðtengd en ætlar að reyna enn um sinn

„Þetta er klemma. Ég veit hvað ég hef uppá að bjóða og er alveg róleg í eigin skinni. Ég þoli þetta og kannski gerist kraftaverk. Kannski fer fólk að hlusta á mig,“ segir Helga. En hún hefur ekki verið að ríða feitum hesti frá skoðanakönnunum. En koma tímar, koma ráð.

Helga hefur átt í vandræðum með að ná inn undirskriftum en það tekur hins vegar kipp um leið og hún fer út á meðal fólks. 

„Þess vegna er ég í þessu. Og ætla að halda ögn áfram. Mitt hjarta segir það líka. Ég er með fullkomna jarðtengdingu, er krabbi, í vatnsmerkinu og átta mig á því að staðan gæti verið betri. En ég er bara fullviss um og trúi á mína þekkingu og ætla að reyna ögn áfram. Hvort íslenska þjóðin átti sig ekki á dömunni. sjáum hvað setur, aðeins í viðbót.“

Helga segist að upplagi hógvær og það sé ekki alveg í hennar eðli að trana sér fram. En hún telur sig geta sinnt forsetaembættinu uppá tíu plús og hennar fólk hefur bent henni á að þær kannanir sem hafa verið kynntar, en þar er hún ekki að ríða feitum hesti frá, geti verið óáreiðanlegar. Og hún á við óvænt mótsagnakennd atriði að stríða.

Hún er óþekkti embættismaðurinn

„Ég er vonandi með nógu sterk bein og ég á góða að. En ást mín á íslensku samfélagi hefur alltaf verið mitt mottó í lífinu. Ég er greinilega þessi óþekkti embættismaður. Og opinberi geirinn sem þekkir mig þarf að gæta hlutleysis.“

Helga er nú að átta sig á því að það að vera forstjóri Persónuverndar, lögfræðingur í 29 ár í opinbera geiranum, er ekki endilega ákjósanlegt þegar þekktasti grínisti landsins og sjálfur forsætisráðherra bjóða sig fram.

Vísir heldur áfram að fylgjast með forsetakjörinu og í dag klukkan eitt verður á dagskrá Pallborð þar sem þrír af þeim fjórum sem efstir eru í könnunum takast á, þau Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir. 


Tengdar fréttir

Katrín á toppnum um allt land

Katrín Jakobsdóttir er með nokkuð örugga forystu meðal frambjóðenda til embættis forseta Íslands samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×