Íslenski boltinn

„Geð­veikt fyrir fé­lagið að fá fyrsta sigurinn núna og brjóta ísinn“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Andri Rúnar Bjarnason sneri aftur heim til Vestra frá Val.
Andri Rúnar Bjarnason sneri aftur heim til Vestra frá Val. skjáskot / vestri

Andri Rúnar Bjarnason, leikmaður Vestra, var í skýjunum eftir að Vestri náði í sinn fyrsta sigur í sögunni í efstu deild. Jeppe Gertsen skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma.

„Mér líður bara helvíti vel. Þetta var sanngjarn sigur fannst mér og geðveikt fyrir félagið að fá fyrsta sigurinn núna og brjóta ísinn.”

Andri er uppalinn fyrir vestan og hefur því dreymt lengi um að Vestri spili í efstu deild og vinni sinn fyrsta leik á því sviði.

„Það er gott að klára það af og nú getum við bara einbeitt okkur að því að halda áfram að spila fótbolta og njóta.”

Það skein sjálfstraustið og samheldnin í Vestra liðinu sem skilaði sér heldur betur í dag.

„Það er bara eins og þú segir, þetta er það sem við stöndum fyrir, Vestri, það er góð liðsheild, við erum allir að hlaupa fyrir alla, við erum að berjast fyrir hvorn annan og við ætlum ekki að vera lið sem verður auðvelt að spila við eða eitthvað í þá áttina þannig ég held að það hafi sést í dag að við mættum bara allir til leiks.”

Andri Rúnar var í byrjunarliðinu í dag eftir að hafa verið að glíma við smávægileg meiðsli.

„Mjög gott að vera búinn að ná að koma svona mínútum í bankann. Ég var óheppinn úti í æfingaferðinni og tognaði þar þannig þetta er svona allt á réttri leið og ég er mjög sáttur með hvar ég stend í dag.”

Vestri spilar sinn fyrsta heimaleik í næstu umferð gegn HK en sá leikur þarf að fara fram í Reykjavík sökum aðstöðuleysis á Ísafirði.

„Það verður skrítið en það er bara algjörlega úr okkar höndum. Það er búið að snjóa eins og ég veit ekki hvað í allan vetur og bara aðstæður sem við ráðum ekki við og það var enginnn sem hefði getað sagt okkur hvernig það var. Við getum í rauninni ekki hugsað neitt um það þannig það er bara fljúga suður og spila á Laugardalsvellinum, gervigrasinu (Avis vellinum, heimavelli Þróttar), það er bara heimaleikurinn okkar næstu helgi.”


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×