Íslenski boltinn

Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akur­eyringum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Amanda Andradóttir byrjar tímabilið vel.
Amanda Andradóttir byrjar tímabilið vel. vísir/anton

Keppni í Bestu deild kvenna hófst í gær með leik Íslandsmeistara Vals og Þórs/KA á N1-vellinum á Hlíðarenda.

Titilvörn Valskvenna fór vel af stað því þær unnu 3-1 sigur á Akureyringum.

Amanda Andradóttir var í stuði í leiknum í gær og skoraði tvö mörk. Það fyrra kom á 24. mínútu þegar hún stýrði fyrirgjöf Jasmínar Erlu Ingadóttur í netið. Þetta var fyrsta mark sumarsins í Bestu deild kvenna.

Amanda var aftur á ferðinni þremur mínútum síðar þegar hún skoraði með góðu skoti fyrir utan vítateig.

Jasmín skoraði svo þriðja mark Vals þegar hún vippaði laglega yfir Hörpu Jóhannsdóttur í marki Þórs/KA.

Gestirnir frá Akureyri minnkuðu muninn fyrir gestina tveimur mínútum þegar hún skoraði með föstu skoti af stuttu færi. Lokatölur 3-1, Valskonum í vil.

Tindastóll og FH áttu líka að mætast í gær en leikurinn fer þess í stað fram í dag. Þá mætast einnig Breiðablik og Keflavík, Stjarnan og Víkingur og Fylkir og Þróttur.

Mörkin úr leik Vals og Þórs/KA má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×