Íslenski boltinn

„Maður vill ekki fara að vor­kenna þeim“

Sindri Sverrisson skrifar
HK þarf á meiri liðsstyrk að halda, að mati Baldurs Sigurðssonar.
HK þarf á meiri liðsstyrk að halda, að mati Baldurs Sigurðssonar. vísir/Hulda Margrét

Baldur Sigurðsson ræddi um slæma stöðu HK í Bestu deild karla í fótbolta, í nýjasta þætti Stúkunnar á Stöð 2 Sport.

HK-ingum var spáð botnsæti Bestu deildarinnar fyrir tímabilið og svo virðist sem góð innistæða hafi verið fyrir þeim spádómum. Liðið náði 1-1 jafntefli við KA á útivelli í fyrstu umferð en hefur síðan ekki skorað mark en tapað á heimavelli gegn ÍA og FH.

„Hvað getur maður sagt? Maður vill ekki fara að vorkenna þeim. Þeir yrðu bara ósáttir við það,“ sagði Baldur sem telur það hafa legið lengi fyrir að HK-inar þyrftu að styrkja leikmannahóp sinn meira.

„Þetta er bara allt erfitt. Við töluðum um það í upphitunarþættinum að þetta er búið að vera svona í allan vetur,“ sagði Baldur.

Klippa: Baldur vill ekki vorkenna HK

HK-ingar hafa verið rólegir á félagaskiptamarkaðnum en fengið Þorstein Aron Antonsson að láni frá Val og hinn 22 ára gamla Englending George Nunn. Þeir hafa hins vegar misst lykilhlekki á borð við Örvar Eggertsson frá síðasta tímabili.

„Ég er spenntur fyrir Þorsteini en ekki fyrir Nunn. Þeir þurfa bara fleira, og þessi tími sem þeir höfðu fram að móti virðist ekki hafa skilað sér. Þetta jafntefli gegn KA virðist ekki einu sinni hafa skilað sér, þrátt fyrir að það hafi verið ógnarsterkt. Þannig að maður hefur áhyggjur af þeim,“ sagði Baldur áður en Gummi Ben benti á að jafnteflið við KA hefði svo ef til vill ekki reynst svo sterkt í ljósi þess að KA hefði ekki náð í stig eftir það.

Næsti deildarleikur HK-inga gæti orðið algjör lykilleikur en liðið mætir Vestra á sunnudaginn í Laugardalnum, á heimavelli Þróttara þar sem að heimavöllur Vestra á Ísafirði er ekki tilbúinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×