Körfubolti

„Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“

Siggeir Ævarsson skrifar
Benni var oft reiður á hliðarlínunni í kvöld enda staðráðinn í að fara ekki í sumarfrí í apríl
Benni var oft reiður á hliðarlínunni í kvöld enda staðráðinn í að fara ekki í sumarfrí í apríl Vísir/Hulda Margrét

Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var sáttur með sigur sinna manna þegar liðið sótti útisigur í Þorlákshöfn í kvöld, 84-91, og tryggði sér þar með oddaleik á fimmtudaginn.

Leikurinn í kvöld gekk í ákveðnum takti, Þórsarar náðu smá forskoti, Njarðvíkingar komu til baka og svo koll af kolli en stóru mómentin, sem Benni ræddi um fyrir leik, féllu með Njarðvíkingum í kvöld, þá ekki síst tvær flautukörfur frá Veigari Páli Alexanderssyni.

Benni sagði þó að hann hefði viljað sjá liðið grípa gæsina fyrr.

„Mér fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr en tókum þau ekki þá. Tókum þau svo loksins að það bara skipti sköpum.“

Það var í raun ekki fyrr en um miðjan fjórða leikhluta sem Njarðvíkingar náðu alvöru tökum á leiknum en munurinn fór þó aldrei yfir tíu stig. Benni sagði það einfaldlega vera þema þessa einvígis.

„Svona eru bara þessir leikir. Eins og ég er búinn að vera að segja alla seríuna, þetta eru alveg fáránlega jöfn lið. Það mun svo lítið skilja á milli. Það eru bara þessi litlu atriði. Eitt frákast til eða frá eða einn klaufalegur tapaður bolti. Þetta þarf allt að vera tipp topp ef þú ætlar að klára því andstæðingurinn er alltaf kominn í hálsmálið á þér.“

Nú er oddaleikur framundan í Njarðvík og Benni sendi ákall til Njarðvíkinga um að fylla loksins Ljónagryfjuna.

„Það ætla ég rétt að vona! Við höfum ekki náð að fylla gryfjuna í allan vetur þó hún taki ekki marga. Þannig að ég vona að Njarðvíkingar fylli hana á fimmtudaginn því það mun hjálpa þvílíkt. Við erum búnir í allan vetur að berjast fyrir þessum heimavallarrétti og fólkið í Njarðvíkunum þarf að hjálpa okkur að láta heimavallarréttinn og Ljónagryfjuna vinna þessa seríu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×