Íslenski boltinn

„Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis.
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis. vísir / anton brink

Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, var ánægður með að hirða stig úr fyrsta leik liðsins í Bestu deild kvenna. Andstæðingurinn, Þróttur, komst marki yfir í fyrri hálfleik en Fylkiskonur jöfnuðu undir lokin. 

„Virkilega ánægður með þetta stig í dag. Á heimavelli og viljum náttúrulega vinna leikina en vorum að spila á móti mjög góðu Þróttaraliði sem á eftir að vera mjög öflugt í sumar. Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp og þetta var opinn, skemmtilegur leikur. Mikið af færum á báða bóga, gat dottið hvoru megin sem var.“

Fylkisliðið virtist taugaóstyrkt fyrst um sinn, ekkert óeðlilegt enda nýliðar í deildinni og mikil spenna fyrir leiknum.

„Ég bjóst algjörlega við því, annað væri óeðlilegt í rauninni. Þrátt fyrir að ég telji okkur hafa undirbúið vel þá er alltaf smá skjálfti. Mér fannst þær vinna sig vel inn í leikinn, þetta var spurning um fyrstu 10-15 mínúturnar, að fara í gegnum þær og það fór bara eins og við ætluðum okkur.“

Þó ýmislegt megi laga er margt jákvætt sem þjálfarinn tekur út úr leiknum. Aðallega segir hann mikilvægt að skjálftinn sé farinn og boltinn byrjaður að rúlla. 

„Margt gott og annað sem má laga. Aðallega að vera búin með fyrsta leik, gríðarlegur spenningur frá því að við förum upp í fyrra. Nú er það búið, nú bara höldum við áfram og vinnum í hlutum sem við þurfum að laga og komum enn sterkari inn.“

Umgjörðin í kringum leikinn var með besta móti. Svo gott sem full stúka og báðum liðum barst góður stuðningur þaðan. 

„Algjörlega til fyrirmyndar. Fólk hér í Árbænum sem heldur utan um mál á stórt hrós skilið. Fólkið sem kom á völlinn, 7-800 manns á leiknum, sem er bara frábært. Virkilega ánægður og það var stemning bæði Þróttaramegin og Fylkismegin. Þetta gefur leikjunum aukið gildi“ sagði Gunnar að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×