Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leandro Trossard og Enzo Fernández í leik kvöldsins.
Leandro Trossard og Enzo Fernández í leik kvöldsins. EPA-EFE/ANDY RAIN

Arsenal tyllti sér á topp ensku úrvalsdeildar karla með stórsigri á Chelsea á Emirates-vellinum í Lundúnum, lokatölur 5-0.

Leandro Trossard kom Skyttunum yfir með skoti úr þröngu færi strax á 4. mínútu. Đorđe Petrović í marki Chelsea hefði þó átt að gera betur enda færið mjög þröngt.

Ekki var meira skorað í fyrri hálfleik en í þeim síðari buðu heimamenn til veislu. Ben White kom Arsenal í 2-0 á 52. mínútu og fimm mínútum síðar skorðai Kai Havertz eftir frábæra sendingu Martin Ødegaard.

Havertz var aftur á ferðinni á 65. mínútu en að þessu sinni var það Bukayo Saka með stoðsendingu. Ødegaard lagði svo boltann á White sem skoraði fimmta mark Arsenal með skoti á lofti þegar enn voru tuttugu minútur til leiksloka.

Mörkin urðu þó ekki fleiri og Arsenal vann gríðarlega öruggan 5-0 sigur. Þar með er Arsenal komið á topp deildarinnar með 77 stig að loknum 34 leikjum. Liverpool er sæti neðar með 74 stig og leik til góða. Þar á eftir koma Englandsmeistarar Manchester City með 73 stig að loknum 32 leikjum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira