Innlent

Þátt­taka nem­enda í „verk­föllum“ skráð sem „ó­heimil fjar­vist“

Atli Ísleifsson skrifar
Frá mótmælendum Hagskælinga á Austurvelli 6. febrúar síðastliðinn.
Frá mótmælendum Hagskælinga á Austurvelli 6. febrúar síðastliðinn. Vísir/Arnar

Þátttaka reykvískra grunnskólabarna í mótmælum á opinberum vettvangi á skólatíma skal afgreidd sem „óheimil fjarvist“ og vera skráð sem slík. Á sama tíma er eitt af leiðarljósum menntastefnu borgarinnar „barnið sem virkur þátttakandi“ þar sem virkni barna og lýðræðisleg þátttaka í leik og starfi er talin mikilvæg leiðarljós í menntastefnu.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Helga Grímssonar, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði, þeim Birnu Hafstein og Helga Áss Grétarssyni.

Fyrirspurnin var lögð fram í tengslum við „verkfall“ grunnskólanemenda í Hagaskóla í febrúar síðastliðnum þar sem aðgerða ríkisstjórnarinnar var krafist í tengslum við stöðu mála í Palestínu.

Helgi Áss Grétarsson borgarfulltrúi lagði fram fyrirspurnina ásamt Birnu Hafstein.Vísir/Arnar

Borgarfulltrúarnir spurðu hvaða reglur og viðmið gildi í grunnskólum Reykjavíkur þegar kæmi að þátttöku nemenda í mótmælum á opinberum vettvangi á skólatíma. „Með öðrum orðum, er slík þátttaka ávallt án heimildar frá skólayfirvöldum eða hefur það gerst að slík þátttaka sé sérstaklega heimiluð og að fjarvist nemenda af þessu tilefni hafi engin áhrif?“

Í svari Helga segir að samkvæmt lögum um grunnskóla sé nemendum skylt að sækja grunnskóla.

Helgi Grímsson er sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.Vísir/Egill

„Skóla- og frístundasvið samþykkti viðmið um skólasókn þar sem gengið er út frá því að nemendur fylgi lögum og reglum um skólaskyldu og starfsfólk skóla skrái mætingu nemenda og bregðist við á samræmdan hátt ef misbrestur verður á skólasókn nemenda.

Skóla- og frístundasviði er aðeins kunnugt um tvö tilvik um „verkföll“ grunnskólanemenda vegna mótmæla á opinberum vettvangi; annars vegar loftlagsverkfall sem var árið 2019 og svo svo í febrúar 2024 vegna stöðu mála í Palestínu.

Verkföll af slíkum toga eiga að vera afgreidd frá skóla sem óheimil fjarvist og skráð sem slík,“ segir í svari Helga.


Tengdar fréttir

„Skólinn í sjálfu sér kemur ekkert nærri þessu“

Hóp­ur grunn­skóla­nema í Haga­skóla í Reykjavík hef­ur boðað til verkfalls á morgun til stuðnings Palestínu. Skólastjóri segist ekki gera sér grein fyrir umfangi verkfallsins og hvort fimm, fimmtíu eða fimm hundruð nemendur muni ganga út úr tímum á morgun. Hann fagnar því að ungt fólk sé hugsandi, taki afstöðu og láti sig samfélagsleg málefni varða. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×