Enski boltinn

Liverpool hefur við­ræður við Arne Slot

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
 Arne Slot gerði Feyenoord að hollenskum bikarmeisturum um síðustu helgi.
 Arne Slot gerði Feyenoord að hollenskum bikarmeisturum um síðustu helgi. Getty/Herman Dingler

Allt lítur út fyrir að Hollendingur muni taka við Liverpool af Jürgen Klopp.

Margir knattspyrnustjórar hafa verið orðaðir við Liverpool eftir að Klopp tilkynnti það í febrúar að hann myndi hætta með liðið í sumar.

Sky Sports slær því upp að forráðamenn Liverpool séu nú byrjaðir í viðræðum við Arne Slot um að hann taki við stjórastöðunni á Anfield.

Hinn 45 ára gamli Slot er stjóri hollenska félagsins Feyenoord en er sagður mjög áhugasamur um að taka við Liverpool.

Arne Slot hefur stýrt liði Feyenoord frá 2021 en hann var áður stjóri AZ Alkmaar.

Feyenoord varð hollenskur bikarmeistari á dögunum, vann hollenska meistaratitilinn í fyrra og komst í úrslit Sambandsdeildarinnar vorið 2022.

Feyenoord hefur unnið 94 af 146 leikjum sínum undir stjórn Slot og er með 64 prósent sigurhlutfall. Liðið hefur skorað 329 mörk í þessum 146 leikjum og er með 182 mörk í plús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×