Innlent

Óttast að saga slökkvi­liða á Ís­landi glatist

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sigurður Lárus Fossberg (t.v.) og Ingvar Georg Georgsson hafa séð um Slökkviliðsminjasafn Íslands síðastliðin tíu ár.
Sigurður Lárus Fossberg (t.v.) og Ingvar Georg Georgsson hafa séð um Slökkviliðsminjasafn Íslands síðastliðin tíu ár. Vísir/Einar

Slökkviliðsminjasafn Íslands verður tæmt á næstu vikum eftir tíu ára rekstur. Umsjónarmenn safnsins óttast að saga slökkviliðsmanna á Íslandi muni glatast að einhverju leyti við brotthvarfið. 

Slökkviliðsminjasafn Íslands hefur verið rekið í Reykjanesbæ í tíu ár. Tveir slökkviliðsmenn, Sigurður Lárus Fossberg og Ingvar Georg Georgsson, hafa unnið hörðum höndum að því að sanka að sér allskonar minjum um slökkvistarf á Íslandi en um er að ræða eina slíka safnið á landinu. Safnið hefur verið lokað síðan í haust og í maí verður það tæmt þar sem bærinn hefur selt húsnæðið.

Klippa: Óttast að saga slökkviliðsmanna glatist

„Við þurfum að skila þessum munum til sinna eigenda og koma þeim þá fyrir því sem er umfram,“ segir Sigurður. 

Búið er að gera upp einhverja þeirra bíla sem eru á safninu.Vísir/Einar

Hér er fjöldi muna og þeir munu þá allir fara annað?

„Já, þeir fara til síns heima, hvar sem það er. Margir af þessum hlutum voru geymdir í köldum, lekum geymslum þar sem sagan okkar var að glatast. Við náum að endurheimta hana en nú fer hún bara aftur í glötun,“ segir Ingvar. 

Bíllinn til hægri var notaður af varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.Vísir/Einar

Á safninu má finna tugi slökkviliðsbíla, búninga, og annað tengt slökkviliðum um land allt. Meðal gripa safnsins er elsta dæla landsins frá árinu 1881 og notuð var á Ísafirði. 

Asbest-galli sem slökkviliðsmenn notuðu til að verja sig frá eldinum.Vísir/Einar

Þeir segja að án aðkomu annars sveitarfélags eða ríkisins muni saga mannanna sem mæta ávallt fyrstir á svæðið þegar voðinn er vís, glatast að miklu leyti.

Að þurfa að kveðja þetta, það er sárt. Virkilega sárt,“ segir Ingvar. 

Slökkvibíll sem notaður var í Reykjavík.Vísir/Einar

Slökkviliðsbíll sem notaður var í Keflavík.Vísir/Einar

Ein af dælum safnsins.Vísir/Einar

Dæla sem notuð var í Keflavík.Vísir/Einar


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×