Fótbolti

Al­fons og fé­lagar nálgast Meistaradeildarsæti

Valur Páll Eiríksson skrifar
Alfons spilaði ekki mikið en lið hans er í góðri stöðu.
Alfons spilaði ekki mikið en lið hans er í góðri stöðu. Getty

Alfons Sampsted spilaði sjö mínútur í mikilvægum sigri Twente á Almere í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Twente vann 3-1 sigur þar sem Mathias Kjolo, Daan Rots og Sem Steijn skoruðu mörk liðsins. Alfons kom inn á sem varamaður á 83. mínútu leiksins, í stöðunni 2-1, en minna en mínútu eftir innkomu hans skoraði Rots þriðja markið.

Twente er eftir sigurinn með 63 stig í þriðja sæti deildarinnar sem veitir þátttökurétt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta ári.

AZ Alkmaar er í fjórða sæti, Evrópudeildarsæti, með 55 stig en getur mest fengið tólf stig úr síðustu fjórum leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×