Innlent

Sig­ríði þykir ó­lík­legt að hún nái undir­skriftum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Sigríður Hrund Pétursdóttir forstjóri Vinnupalla ehf og forsetaframbjóðandi.
Sigríður Hrund Pétursdóttir forstjóri Vinnupalla ehf og forsetaframbjóðandi. Vísir

Milli klukkan tíu og tólf á morgun mun Landskjörstjórn taka við framboðum til forseta Íslands. Eins og fram hefur komið þarf frambjóðandi að hafa 1500 undirskriftir til að komast áfram í kjörið. Tíminn er því naumur fyrir frambjóðendur sem ekki hafa náð þeim undirskriftafjölda. Helga Þórisdóttir er bjartsýn en Sigríður Hrund ekki. 

Í samtali við Vísi segist Sigríður Hrund Pétursdóttir ekki sjá fram á að ná lágmarksfjölda undirskrifta fyrir morgundaginn. „Ég ætla að hafa söfnunina út daginn og sjá svo hvað gerist,“ segir hún í samtali við fréttastofu. 

Helga Þórisdóttir var á Austurlandi þegar fréttamaður náði tali af henni skömmu fyrir hádegi. Aðspurð segist hún á „loka-lokametrunum“ í söfnuninni og segist bjartsýn að undirskriftir náist innan tíðar. 

Í samtali við fréttastofu segir Guðmundur Felix Grétarsson að hann vanti herslumuninn upp á að ná lágmarksfjöldanum. Hann verði í góða veðrinu niðri í bæ í dag að safna undirskriftum.

Ekki náðist í forsetaframbjóðandann Eirík Inga Jóhannsson við gerð fréttarinnar. Á þriðjudagskvöld birti Eiríkur færslu á Facebook þar sem hann sagðist kominn með undirskriftir úr þremur af fjórum landshlutum. Þá sagðist hann að öllum líkindum ná síðasta fjórðungnum daginn eftir, sem sagt í gær.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Lykilfólkið á bak við tjöldin hjá forsetaefnunum

Kanónur sem hafa áralanga reynslu af kosningabaráttum í bland við vini og fjölskyldu er uppistaða lykilfólks að baki forsetaframbjóðendum þetta árið. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum forsetaframboða til Vísis.

Segja baráttuna bara rétt að hefjast

Þær Helga Þórisdóttir og Ásdís Rán Gunnarsdóttir, forsetaframbjóðendur, segja kosningabaráttuna rétt að byrja og þær muni láta ljós þeirra skína. Ásdís er nýbúin að safna nægilega mörgum undirskriftum og Helga segist á lokametrunum með það.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×