Skoðun

Að mæðra barn í hjarta sínu

Hólmfríður Anna Baldursdóttir skrifar

Þann 12. maí verður mæðradegi fagnað á Íslandi. Iðulega fer af stað markaðssetning á mæðradagsgjöfum og sumir heilla mæður sínar með fallegum myndum og kveðjum á samfélagsmiðlum. En hjá mörgum vekur þessi dagur upp flóknar og erfiðar tilfinningar. Við hjá Gleym mér ei höfum séð hversu þungt það er að bíða í tilhlökkun og von um að fá barn í fangið, en ganga svo tómhent heim af fæðingardeildinni og fá aldrei að sjá barnið sitt vaxa úr grasi - að mæðra barn í hjarta sínu ævilangt. Á dögum sem þessum getur tómleikinn orðið meira yfirþyrmandi.

Gleym mér ei er félag sem er til staðar fyrir foreldra sem missa á meðgöngu, í fæðingu eða fljótlega eftir fæðingu. Á þessum mæðradegi viljum við beina sjónum okkar sérstaklega að þessum viðkvæma hópi sem oftar en ekki ber sorg sína í hljóði. Í fyrra dreifði Gleym mér ei hátt í 170 minningarkössum sem ætlað er að hjálpa foreldrum og aðstandendum að varðveita minningu litlu ljósanna sinna. Því miður hafa aldrei fleiri minningarkassar farið frá okkur á einu ári. Það eru því margar tómhentar mæður þarna úti.

Minningarkassarnir hafa verið eitt helsta verkefni Gleym mér ei síðustu árin. Við útvegum allt efni í þá, s.s. gifsmót fyrir litla fætur og hendur, box fyrir hárlokk, tuskudýr, kertastjaka, skartgripi fyrir foreldra og barn, og upplýsingaefni. Við pökkum þessu í fallega kassa með hjálp sjálfboðaliða og sendum á spítala um allt land eftir þörfum.

Til að fjármagna gerð kassana, og gera enn betur í þjónustu og stuðningi við foreldra sem missa í barneignarferlinu, höfum við hjá Gleym mér ei hafið söfnun inn á styrkja.is/gleym-mer-ei. Við vonum að almenningur í landinu geti lagt okkur lið og tekið þátt í okkar fallegu verkefnum. Auk minningarkassanna, hefur Gleym mér ei útvegað kælivöggur á spítala landsins svo að foreldrar geti haft börnin hjá sér lengur og skapað minningar með þeim. Við erum í samstarfi við flokk sjálfboðaliða um allt land sem saumar og prjónar fyrir okkur lítil föt og öskjur fyrir þau allra minnstu. Einnig veitum við þjónustu til foreldra í sorgarferlinu með ráðgjafasamtölum og jafningjastuðningi, og skipuleggjum viðburði, samveru og minningarstund fyrir alla aðstandendur. Við gætum ekki haldið úti þessum verkefnum nema með stuðningi almennings og fyrirtækja í landinu.

Á þessum mæðradegi skulum við hugsa sérstaklega til þeirra mæðra sem fá ekki að halda á börnum sínum í fanginu, heldur geyma þau í hjörtum sínum ævilangt. Við sjáum ykkur elsku mæður.

Höfundur er stjórnarformaður hjá Gleym mér ei.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×