Skoðun

Takk fyrir vettlingana!

Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar

Við, undirritaðir foreldrar, eigum það sameiginlegt að telja leikskóla- og daggæslumálum borgarinnar illa fyrir komið. Við erum foreldrar ungra barna sem höfum reynslu af úrræðaleysi í kjölfar fæðingarorlofs og þeim áhyggjum sem fylgja biðlistavanda leikskólanna. Sum okkar hafa séð þann kost vænstan að flytja til annarra sveitarfélaga þar sem þjónusta við barnafólk er betri. Mörg okkar hafa íhugað slíka flutninga. Sú óvissa sem borgaryfirvöld bjóða barnafólki í kjölfar fæðingarorlofs er bæði íþyngjandi og kvíðavaldandi.

Við fögnum svokölluðum vettlingagjörningi sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks stóðu fyrir í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrr í vikunni. Var gjörningurinn táknrænn og sýndi með myndrænum hætti þann fjölda fjölskyldna sem búa við óvissu í kjölfar fæðingarorlofs. Tekin var afgerandi staða með fjölskyldufólki og fyrir það erum við þakklát.

Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum er meðalaldur barna við inngöngu á leikskóla Reykjavíkur 22 mánuðir, sem er töluvert hærri meðalaldur en í nágrannasveitarfélögum. Fjöldi barna er jafnvel kominn vel á þriðja aldursár þegar leikskólagangan hefst loks í Reykjavík. Þá hefur dagforeldrum í Reykjavík farið ört fækkandi og borgin hafnað öllum hugmyndum um heimgreiðslur til þeirra sem enga þjónustu fá.

Þessi skortur á þjónustu við barnafólk leiðir til gríðarlegs tekjutaps fyrir fjölskyldufólk í kjölfar fæðingarorlofs. Almennt neyðist annað foreldrið til að vera heimavinnandi meðan á biðinni stendur með tilheyrandi kostnaði fyrir heimilishaldið. Sé tekið mið af meðalaldri barna við inngöngu á leikskóla, bíður hvert heimili í 10 mánuði eftir þjónustu í kjölfar fæðingarorlofs. Tekjutapið við slíka bið hleypur á fleiri milljónum fyrir flest heimili. Þá þarf vart að nefna hve staðan er krefjandi fyrir einstæða foreldra.

Það er löngu tímabært að gera leikskóla- og daggæslumál að forgangsmáli í Reykjavík. Áralöng vanræksla málaflokksins hefur leitt af sér þunga stöðu fyrir ungar fjölskyldur og brottflutning fjölmargra til annarra sveitarfélaga. Við erum þakklát þeim borgarfulltrúum sem sýna stöðu okkar skilning og taka upp hanskann fyrir fjölskyldufólk í Reykjavík.

Höfundar eru foreldrar leikskólabarna í Reykjavík. Undir bréfið skrifa:

Andrea Sigurðardóttir

Anna Bergmann

Atli Bjarnason

Áslaug Björnsdóttir

Berglind Bergmann

Ellert Finnbogi Eiríksson

Erla María Jónsdóttir Tölgyes

Erna Niluka Njálsdóttir

Eva María Jónsdóttir

Guðrún Gígja Georgsdóttir

Hólmfríður Erna Kjartansdóttir

Jakob Helgi Bjarnason

Lísbet Sigurðardóttir

Magnús Júlíusson

Nanna Kristín Tryggvadóttir

Stefán Þórarinsson

Sverrir Hjaltested

Thelma Björk Wilson

Valgerður Sigurðardóttir

Þóra Helgadóttir


Tengdar fréttir

Segir borgarstjóra óttalegan vettling

Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir vettlingagjörninginn hafa átt að vekja athygli á erfiðri stöðu foreldra ungabarna í Reykjavík. Gjörningurinn hafi ekki átt að vera innlegg í kjarabaráttu leikskólakennara og flokkurinn hafi aldrei boðað töfralausnir í málaflokknum.

Leik­skóla­kennarar ó­sáttir við vettlinga­­gjörning

Stjórn Félags leikskólakennara tekur ekki undir yfirlýsingar stjórnmálafólks þar sem boðaðar eru „skyndilausnir sem engu skila“. Í nýrri ályktun stjórnar félagsins segir að engin formleg vinna í tengslum við kjarasamninga sé í gangi varðandi skipulagningu skólastarfs í leikskólum og því síður vinna í gangi að skoða að taka fimm ára börn í grunnskóla.

„Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gefur lítið fyrir ummæli Einars Þorsteinssonar borgarstjóra. Í dag lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins 1600 vettlinga á gólf Ráðhússins sem þau sögðu svipað marga og börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni.

Sjálf­stæðis­flokkurinn kvelji barna­fólk með vettlinga­gjörningi

Einar Þorsteinsson borgarstjóri gefur ekki mikið fyrir mótmæli borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í ráðhúsinu í dag. Þar lögðu borgarfulltrúar flokksins 1.600 vettlinga sem þau sögðu svipað marga og þau börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni.

Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kom í dag 1.600 barnavettlingum fyrir í Tjarnasal ráðhússins. Svipaður fjölda barna bíði nú eftir leikskólaplássi. Oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir, segir uppátækið ekki síst til þess að minna borgarstjóra á leikskólavandann.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×