Skoðun

Spurðu fólkið

Halla Tómasdóttir skrifar

Gildir lýðræðið bara á fjögurra ára fresti? Eru kjósendur utan þjónustusvæðis þess á milli? Eftir fjármálahrunið 2008 leið mörgum eins og þeir væru leiksoppar ráðamanna, engu skipti hvað hinum „venjulega manni“ fyndist, hann væri ekki með á leikvellinum. Sjálfsmynd þjóðarinnar var brotin – eða hreinlega ekki til. Ekkert sameiningarafl. Enginn spegill að horfa í.

Við vorum handfylli ólíkra einstaklinga sem ákváðum að gera eitthvað í þessu – við yrðum að finna leið til að tala saman og finna hvert þessi þjóð vildi stefna. „Ef þú veist ekki hvert þú vilt fara, þá endarðu bara einhvers staðar,“ sagði kötturinn við Lísu í Undralandi. Það skiptir máli að reyna að átta sig á því hvert maður vill fara. En hvernig er hægt að finna út hvað fólki finnst? Það eru margar aðferðir til þess, þróaðar af rannsakendum og ráðgjöfum með mikla reynslu - við ákváðum að læra af þeim bestu. Fyrsta skrefið var að finna hóp sem endurspeglaði þjóðina hvað aldur, kyn, búsetu og aðra lykilþætti varðaði. Tölfræðingar kunna þetta og vinna með Þjóðskrána sem grunn. Hún nær yfir alla þjóðina og sé hópurinn nógu stór, gefur hann marktæka mynd af heildinni. Þetta er kallað slembiúrtak.

Við fengum Þjóðskrá til að taka slembiúrtak af íslensku þjóðinni sem við buðum til fundar – Þjóðfundar í Laugardalshöll þann 14. nóvember 2009. Við buðum 1200 Íslendingum á öllum aldri og úr öllum áttum að taka þátt og til viðbótar buðum við 300 fulltrúum hinna ýmsu félagasamtaka og stofnana samfélagsins. Þannig varð til 1500 manna hópur sem tók þátt í þessum merkilega fundi.

Hópnum var skipt niður á 9 manna borð, til viðbótar var einn „borðstjóri“ sem sá um að dagskrá væri fylgt, allir kæmust að, allar skoðanir væru virtar og ræddar, þær skiluðu sér og væru skráðar. Öllu var til haga haldið með bestu aðferðum sem völ var á.

Hugmyndin var að virkja sameiginlegt innsæi og vitund almennings til að greina þau grundvallargildi sem samfélagið ætti að vera reist á, og móta þannig okkar framtíðarsýn.

Heiðarleiki var það gildi sem skar sig algjörlega úr sem mikilvægast fyrir samfélagið, en á eftir komu jafnrétti, virðing, réttlæti og ábyrgð.

Þarna fundum við leiðarljós þjóðarinnar – áttavitann okkar.

Forseti þarf ekki að leita í eigin huga eftir þeim gildum sem hann setur á oddinn. Þjóðin er búin að segja okkur hver þau eru. Reyndar eru 15 ár síðan og sumt kann að hafa breyst. Það kann að vera að þau sem voru börn þá og eru orðin fullorðin núna, hafi sitt að segja. Það þarf að spyrja þau. Sennilega væri gott að endurtaka leikinn og greina hvaða gildi þjóðinni eru hugstæðust núna.

Þetta vil ég gera. Ég vil spyrja fólkið, hlusta á svörin og breyta samkvæmt þeim. Forseti er ekki fulltrúi eigin áhugamála, hann er fulltrúi þjóðarinnar. Ég veit að þetta er hægt, í góðum hópi hef ég gert það áður og vil gera það aftur.

Höfundur er frambjóðandi til embættis forseta Íslands 2024



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×