Innlent

Fengu að­stoð sérsveitar og Gæslunnar við hand­töku við Gríms­vötn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mynd úr safni af þyrlu Landhelgisgæslunnar að störfum við Grímsfjall.
Mynd úr safni af þyrlu Landhelgisgæslunnar að störfum við Grímsfjall. Landhelgisgæslan

Lögreglan á Suðurlandi naut aðstoðar tveggja sérsveitarmanna og þyrluáhafnar Landhelgisgæslunnar við handtöku manns sem grunaður er um ölvunarakstur á Grímsfjalli. Samferðafólk hans í jeppaferð tilkynnti manninn til lögreglu.

Í gær flaug þyrla Landhelgisgæslunnar með tvo sérsveitarmenn að Grímsfjalli á Vatnajökli. Þar í skála voru tveir hópar af fólki í jeppaferð. Maður úr öðrum hópnum hafði þá um kvöldið sest upp í bíl sinn ölvaður og byrjað að aka um með farþega. Langur akstur er að skálanum og einungis hægt að komast að á sérútbúnum bílum og því mat lögreglan sem svo að til að komast sem fyrst á staðinn væri réttast að senda þyrluna. Til að flýta enn frekar fyrir voru sérsveitarmennirnir fengnir í verkefnið í stað þess að sækja lögreglumenn á Suðurlandi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi hlustaði maðurinn ekki á samferðafólk sitt þegar þau sögðu honum að hætta akstri heldur ók hann inn á hættusvæði. Með því kom hann sjálfum sér og farþeganum í hættu. Samferðamennirnir treystu sér ekki til þess að aka inn á hættusvæðið á eftir manninum. 

Um tíma slökkti maðurinn á samskiptabúnaði sínum en að lokum ók hann sjálfur að skálanum. Þá var þyrlan þegar á leiðinni og ákvað lögreglan að henni yrði ekki snúið við. Því var maðurinn handtekinn á staðnum og fluttur á lögreglustöðina á Selfossi, grunaður um ölvunarakstur. 

Málið telst afar sérstakt samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni og var það litið afar alvarlegum augum. Fjöldi vitna varð að akstrinum og er unnið að því að klára að taka skýrslur af þeim. Verið er að yfirheyra manninn og verður honum sleppt að skýrslutöku lokinni. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×