Íslenski boltinn

„Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Eyþór Aron Wöhler skrifaði á dögunum undir þriggja ára samning við KR. Hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum síðan.
Eyþór Aron Wöhler skrifaði á dögunum undir þriggja ára samning við KR. Hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum síðan. Vísir/Baldur

Eyþór Aron Wöhler kom inn sem varamaður KR í 2-3 tapi gegn Breiðabliki í kvöld. Hann sagði gaman að etja kappi við gamla liðsfélaga en leið á tímapunkti eins og hann væri staddur í ofbeldisfullri bíómynd.

„Virkilega súrt, við áttum að fá meira úr þessum leik. Þetta var einhver vitleysa þarna í endann, mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd. Verðum bara að gera betur hreinlega, fá Blika í heimsókn og leyfa þeim að skora þrjú, það er ekki ásættanlegt. Tilfinningin í endann heldur betur súr, sérstaklega á móti gamla liðinu, ekki gaman að tapa á móti þeim.“

Blaðamaður áttaði sig ekki alveg á tilvísun Eyþórs í Keanu Reeves. Var þetta semsagt jafn ofbeldisfullt og hans kvikmyndir? 

„Það liggur við, þetta var hreinlega vitleysa í endann og blés upp í eitthvað sem átti ekki að vera. En bara gaman líka, gaman að keppa móti gömlu liðsfélögunum, auðvelt að mótivera sig í svona leiki.“

Eyþór kom til KR frá Breiðabliki fyrir tveimur vikum síðan og hlakkaði greinilega til að spila leik gegn gömlu félögunum.

„Eins og ég segi, það var auðvelt að mótivera sig og koma inn í einhvers konar slagsmál. Negla gömlu liðsfélagana, maður þekkir alla þessa stráka, góðir vinir manns og það er bara tekið í höndina á mönnum eftir leik og knúsast. En við áttum að taka meira úr þessum leik og gerum betur næst.“

Þá var Eyþór að lokum spurður hvernig honum þætti nýja treyjan líta út, sem KR spilaði í í kvöld. 

„Ég verð bara að gefa hrós á þá sem stýra búninganefnd KR. Mjög skemmtilegt ‘touch’ og klárlega eitthvað sem fleiri lið ættu að vinna með. Hrós frá mér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×