Innlent

Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir

Jón Ísak Ragnarsson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir er formaður Lyfjafræðingafélags Íslands.
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir er formaður Lyfjafræðingafélags Íslands. Vísir

Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands hefur miklar áhyggjur af starfsumhverfi lyfjafræðinga. Svo virðist sem uppákomur eins og vopnuð rán séu að færast í aukana.

Tvö rán voru framin í apótekum á höfðuborgarsvæðinu gær og voru þjófanir á eftir ávana-og fíknilyfjum í bæði skiptin. Annað ránið var framið í Lyfju á Smáratorgi og hefur einn verið handtekinn vegna þess. Hitt ránið var framið í Reykjavíkurapóteki í Vesturbænum. Þar ógnuðu ræningjarnir starfsfólki með eggvopni, tóku starfsmann hálstaki og neyddu hann til að sýna þeim hvar ávana- og fíkniefnalyf voru geymd.

Mikið áfall fyrir starfsmenn

Sigurbjörg segir það agalega sorglegt þegar svona gerist og að það sé klárlega mikið áfall fyrir starfsmenn þegar svona gerist. „En þetta hefur náttúrulega verið að gerast, og í miklu meiri mæli en almenningur gerir sér kannski grein fyrir, það kemur ekkert allt í fréttirnar,“ segir Sigurbjörg. Hún segist hafa mjög miklar áhyggjur af starfsumhverfi lyfjafræðinga.

Er eitthvað sem bendir til þess að það séu einhverjar sérstakar ástæður að baki þessu?

„Sko í rauninni til þess að komast algjörlega að rót vandans, þá þyrfti að kortleggja þetta,“ segir Sigurbjörg. Hún segir að Apótek geti auðvitað brugðist við með sínum aðgerðum, þau geti verið með öryggismyndavélar og öryggisfulltrúa. Þau gætu jafnvel hætt að selja ákveðna lyfjaflokka og læst lyfjafræðingana inni. „En það þarf að horfa á þetta í bara miklu stærra samhengi. Vegna þess að ef að það reynist rétt, eins og ákveðnar vísbendingar eru um, að þetta sé ákveðinn hópur sem að er að leita í þessi Apótek, þá þurfi að bregðast við því. Það vantar úrræði þá fyrir þennan hóp,“ segir Sigurbjörg.

Vill ekki að Ísland verði eins og Svíþjóð

Sigurbjörg segir að rán í apótekum séu orðin mjög algeng í Svíþjóð og að það sé orðið mjög stórt vandamál. „Lyfjafræðingar fást bara ekki í vinnu í apótekum, Þetta er bara vaxandi vandamál þar, og ég hef bara verulegar áhyggjur af því að það gerist, því að við megum ekki við því,“ segir Sigurbjörg.


Tengdar fréttir

Mennirnir tóku annan starfs­mannanna háls­taki

Ólafur Adolfsson, eigandi Reykjavíkurapóteks, segir mennina sem frömdu vopnað rán í apótekinu í dag hafa tekið annan starfsmannanna hálstaki og heimtað að fá ávana- og fíknilyf. Hann segir það taka á starfsmennina að verða fyrir slíku ráni. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×