Körfubolti

Fyrstir á­fram en þjálfarinn meiddist al­var­lega þegar leik­maður hans lenti á honum

Sindri Sverrisson skrifar
Chris Finch reyndi að forðast högg frá Mike Conley eftir að Devin Booker hafði ýtt Conley í átt að þjálfaranum, sem meiddist illa í hné.
Chris Finch reyndi að forðast högg frá Mike Conley eftir að Devin Booker hafði ýtt Conley í átt að þjálfaranum, sem meiddist illa í hné. AP/Ross D. Franklin

Minnesota Timberwolves urðu í gærkvöld fyrstir til þess að tryggja sig áfram í undanúrslit vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta en það gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig. Risaframmistaða Devin Booker dugði Phoenix Suns ekki.

Minnesota vann Phoenix 122-116 í gær og þar með einvígi liðanna 4-0. Þetta er fyrsti sigur liðsins í útsláttarkeppninni síðustu tvo áratugi. Anthony Edwards skoraði 40 stig, þar af 31 í seinni hálfleik, og tók níu fráköst, og Karl-Anthony Towns skoraði 28 stig og tók 10 fráköst.

Hjá Phoenix var Booker með heil 49 stig, sem er met hjá honum í útsláttarkeppni, og Kevin Durant bætti við 33 en það dugði ekki til.

Minnesota varð að klára leikinn án þjálfarans Chris Finch sem meiddist þegar tæpar tvær mínútur voru eftir, þegar hans eigin leikmaður, Mike Conley, lenti illa á honum eftir brot Bookers.

Finch gat því ekki rætt við fjölmiðla eftir leik og í ljós kom að hann hefði slitið hnéskeljarsin. Hann fékk heimsókn frá leikmönnum sínum eftir leikinn og þeir gátu saman glaðst yfir áfanganum.

Útlit er fyrir að Minnesota mæti Denver Nuggets í næsta einvígi en Denver er 3-1 yfir gegn LA Lakers og gæti klárað einvígið í kvöld.

Clippers jöfnuðu einvígið

Indiana Pacers unnu Milwaukee Bucks 126-113 og eru komnir í 3-1 í einvígi liðanna í austurdeildinni. Milwaukee er án Damian Lillard og Giannis Antetokounmpo vegna meiðsla og Bobby Portis meiddist snemma leiks.

LA Clippers náðu svo að jafna einvígi sitt við Dallas Mavericks í 2-2, með 116-111 sigri. Dallas lenti 31 stigi undir í fyrri hálfleik en tókst með 40 stiga leik Kyrie Irving að komast yfir í leiknum, áður en Clippers tryggðu sér sigur á lokamínútunum. James Harden og Paul George skoruðu 33 stig hvor.

NBA

Tengdar fréttir

Brun­son skaut Phila­delphia í kaf

New York Knicks lagði Philadelphia 76ers í fjórða leik liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Jalen Brunson var hreint út sagt ótrúlegur í fimm stiga sigri Knicks, lokatölur 97-92. Sigurinn þýðir að Knicks er aðeins einum sigri frá sæti í undanúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×