Körfubolti

Lands­liðs­maður blandar sér í um­ræðuna um um­deilda sigur­körfu Njarð­víkinga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bræðurnir Styrmir Snær og Tómas Valur Þrastarsynir voru saman í landsliðshópnun í vetur.
Bræðurnir Styrmir Snær og Tómas Valur Þrastarsynir voru saman í landsliðshópnun í vetur. Vísir/Vilhelm

Njarðvíkingar hefja í kvöld undanúrslitaeinvígi sitt á móti Val í Subway deild karla í körfubolta. Þeir eru þar þökk sé magnaðri flautukörfu Þorvaldar Orra Árnasonar.

Þórsarar voru mjög ósáttir með að þessi karfa hans hafi fengið að standa og hafa verið duglegir að gagnrýna hana á samfélagsmiðlum sem og annars staðar. Þjálfari Þórsliðsins, Lárus Jónsson, gagnrýndi þetta líka en af sinni kunnu kurteisi, þrátt fyrir gríðarlegt svekkelsi rétt eftir leik.

Gagnrýnin kemur víða að og þar á meðal frá Belgíu þar sem landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson spilar með liði Belfius Mons-Hainaut.

Hér má sjá hvað Styrmir Snær Þrastarson birti á samfélagsmiðlum sínum.@styrmir_thrastar

Styrmir er eins og kunnugt er Þórsari en hann varð Íslandsmeistari með liðinu 2021, spilaði með liðinu á síðasta tímabili og í Þórsliðinu í dag er yngri bróðir hans Tómas Valur Þrastarson.

Það er búið að skoða það vel og í raun sanna það að Þorvaldur Orri náði að sleppa boltanum áður en þessar 0,9 sekúndur liðu á klukkunni. Á því leikur enginn vafi.

Styrmir er hins vegar að benda á það að klukkan var ekki stoppuð á réttum tíma eftir að Darwin Davis skoraði í sókninni á undan og kom Þórsliðinu þá í 97-95.

Hann sýnir mynd af því þegar klukkan stendur í 0,9 og boltinn er ekki kominn alla leið í gegnum netið. Með þessu birtir Styrmir síðan brot úr reglubók FIBA þar sem er nákvæmlega útskýrt hvenær á að stoppa klukkuna. Hana á ekki að stöðva fyrr en boltinn er farinn allur í gegnum netið.

Klippa: Umfjöllun um sigurkörfu Þorvaldar Orra

Á þessu tvennu sést að Þorvaldur Orri átti líklegst aldrei að fá þessar 0,9 sekúndur til að skora þessa stórkostlegu sigurkörfu sína.

Þessi umdeilda karfa fékk hins vegar að standa því dómararnir fóru ekki yfir það hvort tíminn hafi verið stöðvaður á réttum tíma. Eftir það gátu þeir aðeins skoðað hvort Þorvaldur Orri sleppti boltanum áður en klukkan rann út og það gerði hann.

Hér fyrir ofan má sjá umfjöllun um þessa körfu í Subway Körfuboltakvöldi eftir leikinn í Ljónagryfjunni.

Það verður talað lengi um þessa ótrúlegu og umdeildu körfu en úrslitunum verður ekki breytt. Þórsarar eru komnir í sumarfrí en Njarðvíkingar hefja leik í kvöld í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Val.

Leikurinn hefst klukkan 20.15 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst á sömu stöð klukkan 19.45.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×