Lífið

Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ólafur Jóhann lagði mikið á sig til að láta drauminn rætast.
Ólafur Jóhann lagði mikið á sig til að láta drauminn rætast.

Ólafur Jóhann Steinsson Tik-Tok stjarna er orðinn útvarpsmaður á FM957. Þetta var tilkynnt í Brennslunni á dögunum en Rikki G segist ekki hafa getað annað en samþykkt umsóknina eftir að Ólafur birti skilaboð til kappans á auglýsingaskilti á Times Square í New York.

„Velkominn til starfa. Það var eiginlega ekkert annað hægt, miðað við öll skilaboðin sem ég fékk,“ segir Rikki í útvarpsþættinum. Ólafur Jóhann verður með vikulegan þátt á FM957 alla laugarda frá klukkan 16 til 18.

FM95Líkt og fram hefur komið hefur það lengi verið draumur Ólafs Jóhanns að verða útvarpsmaður. Hann kom Rikka og öllu starfsfólki stöðvarinnar heldur betur á óvart þegar hann greindi þeim frá því að hann hefði birt flennistór skilaboð til útvarpsmannsins á einu af stærstu auglýsingaskiltum New York borgar.

„Það sem þú þarft að vita þegar þú ferð í atvinnuviðtal er að manneskjan sem er að ráða þig inn má aldrei gleyma þér,“ sagði Ólafur Jóhann við tilefnið. 

Hann var svo tekinn í létt próf og fenginn til að heyra eina af frægustu söngkonum samtímans syngja sitt frægasta lag. Þar var engin önnur en Celine Dion á ferðinni en Ólaf Jóhann grunaði fyrst að þarna væri Jóhanna Guðrún að syngja.

@olafurjohann123 Heyrumst á morgun ! @FM957 ♬ original sound - oli





Fleiri fréttir

Sjá meira


×