Lífið

Baldurs og Felix-fáni falur

Jakob Bjarnar skrifar
Bollarnir sem nú eru til sölu til stuðnings framboðinu. Þetta gætu reynst fágætir safngripir innan einhverra ára.
Bollarnir sem nú eru til sölu til stuðnings framboðinu. Þetta gætu reynst fágætir safngripir innan einhverra ára.

Stuðningsmenn framboðs Baldurs Þórhallssonar og Felix Bergssonar hafa útbúið varning sem þeir selja til stuðnings framboðinu.

Um er að ræða bolla, svuntur og fána með áletrun. Fáninn er dýrastur en á hann er letrað „Forsetakosningar 2024“ og „Baldur og Felix – vinnum saman“.

Þá er hægt að kaupa sérstakan Baldurs-bolla og Felix-bolla en þeir kosta 4495 krónur. Og að endingu eru það svuntur, önnur með teikningu af Baldri og hin af Felix, líkt og bollarnir en þær kosta 4495.

Ljóst er að nú er kosningabaráttan hafin fyrir alvöru.  Búið er að auglýsa varninginn á Facebook-síðu stuðningsmanna og þar segir Ruth Fjeldsted: „Verst hvað þetta er ósmekklegt.“ Og hún lætur fylgja með hvort maður eigi ekki að vera hreinskilinn?

Gunnar Helgason, einn helsti stuðingsmaðurinn grípur þetta á lofti og segir: „Ósmekklegt? Já ég er sammála! Það vantar smekka í vöruúrvalið!!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×